Urðu að gera hlé á leiknum vegna jarðskjálftans í gær Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. október 2016 07:30 Leikmenn Pescara og Atalanta eftir að jarðskjálftinn varð. Vísir/Getty
Jarðskjálftinn á Ítalíu í gærkvöldi hafði áhrif á leik í ítölsku A-deildinni en það þurfti að gera hlé á leik Pescara og Atalanta vegna jarðskjálfta. Tveir öflugir jarðskjálftar urðu á Ítalíu í gær, sá fyrri var 5,4 að stærð og varð um fimm en öflugur eftirskjálfti á áttunda tímanum var 5,9 að stærð. Síðasti skjálftinn varð einmitt í miðjum leik Pescara og Atalanta en upptökin voru í nágrenni Pescara þar sem leikurinn fór fram. Fólk í Pescara og nágrenni hljóp út á götu en fyrir tveimur mánuðum reið öflugur skjálfti yfir suður Ítalíu þar sem 295 manns fórust. Ekki er vitað um að einhver hafi farist í þessum skjálftum sem urðu í gær. Það var enn fyrri hálfleikur í leik Pescara og Atalanta og markalaust þegar skjálftinn reið yfir en gera þurfti tveggja mínútna hlé á leiknum. Leikurinn hófst svo á nýjan leik og Mattia Caldara skoraði síðan eina mark leiksins fyrir gestina í Atalanta á 60. mínútu. Sigurmarkið skoraði Caldara með skalla eftir hornspyrnu frá Remo Freuler. Atalanta komst upp í sjötta sætið með þessum sigri en heimamenn í Pescara eru aðeins stigi frá fallsæti efir þriðja tap sitt í síðustu fjórum leikjum.
Ítalski boltinn Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Uppgjörið: KA bikarmeistari 2024 Íslenski boltinn Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Sló 24 ára gamalt met Kára Steins, aftur Sport Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum Fótbolti Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Enski boltinn Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Enski boltinn UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Íslenski boltinn Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Enski boltinn Fleiri fréttir Þriðja markalausa jafntefli Juventus í röð „Það hlaut að koma að því“ Í beinni: Real Madrid - Espanyol | Þurfa að halda í við sjóðheita Börsunga Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Uppgjörið: KA bikarmeistari 2024 Rúnar Þór lagði upp og setti boltann í eigið net Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Bayern búið að skora tuttugu mörk í síðustu þremur leikjum Selfoss og KFA mætast í úrslitum Ásdís Karen skoraði í þriðja sigri Lillestrøm í röð Sjö KR-ingar heiðraðir á Anfield Orri í byrjunarliði Real Sociedad sem mistókst enn og aftur að skora Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Lið Ísaks og Valgeirs bjargaði stigi á dramatískan hátt Endurkoma hjá Dagnýju „Er ekki bara kominn tími til að breyta þessu?“ Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed „Okkar að stöðva drauma þeirra í fæðingu“ Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Gróðursetja tvö hundruð tré fyrir hvert skorað mark Ferguson saknar fótboltans Uppgjörið og viðtöl: Víkingur - Þróttur 1-1 | Eitt stig á hvort lið í fremur rólegum leik „Ætlum að taka bikarinn norður, það er bara staðan“ „Held að þetta verði mjög erfiður leikur“ Sjá meira