Erna Kristín hefur tekið samfélagsmiðlana Snapchat og Instragram tryggilega í sína þjónustu og auglýsir á þeim eigin hönnun, föt og myndir, og einnig innlenda og erlenda hönnun annarra, til að mynda barnavörur sem hún fær sendar frá fyrirtækjum.

Hún bætir við að hún leggi sáralitla áherslu á Facebook þegar kemur að því að auglýsa hönnun eftir sjálfa sig og aðra, enda séu vinsælar „læksíður“ á Facebook nánast faldar þegar fylgjendur þeirra ná ákveðnum fjölda, nema eigendur þeirra borgi sérstaklega fyrir þær.
„Það er algjör klikkun og ég er ekki að fara að borga Facebook. Það kemur ekki til mála,“ segir hún ákveðin.

„Um leið og ég fór að deila persónulegum hlutum úr lífi mínu fjölgaði fylgjendum mínum til muna, þótt þeir hafi verið margir fyrir. En ég nenni alls ekki að fara eftir neinum óskrifuðum reglum í sambandi við samfélagsmiðlana og geri þetta bara eins og mér finnst skemmtilegt. Svo er fólki velkomið að fylgjast með ef það hefur áhuga. Ég hef heyrt að fylgjendur sumra annarra reikninga setji ákveðnar kröfur á eigendur þeirra, að gera meira af þessu og minna af hinu og þar fram eftir götunum, en ég er sjálf mjög heppin með fylgjendur og hef ekki lent í neinu slíku.“

„Um leið og þetta verður kvöð fyrir hann þá hætti ég að nota hann því ég er mjög meðvituð um að passa upp á hann,“ segir Erna Kristín og viðurkennir að hún hafi í meira en nægu að snúast þessa dagana og ekki minnkar álagið við það að stunda guðfræðinám við Háskóla Íslands sem hún lýkur nú um jólin.
Eftir áramót tekur svo prestsnám við hjá Ernu Kristínu. Spurð hvernig hún haldi að framtíðarsöfnuðir taki í það að presturinn þeirra sé umsvifamikill á samfélagsmiðlum segist hún ætla að verða nútímalegur prestur sem horfir fram á við.
„Ég veit ekki hvort þessi dæmigerða messa myndi henta mér. Ég hef áhuga á því að predika fyrir samfélagið út frá hlutum sem fólk tengir við og vill heyra. Það er margt gott fólk að koma inn í kirkjustarfið á Íslandi með nútímaleg viðhorf og miðað við það hvernig talað er um kirkjuna í dag held ég að það sé gott fyrir framtíð kirkjunnar.“