Willum Þór þjálfar KR-liðið næstu tvö árin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. nóvember 2016 14:48 Willum Þór Þórsson og Arnar Gunnlaugsson verða með KR næsta sumar. Vísir/Vilhelm
KR-ingar staðfestu í dag verst geymda leyndarmál íslenska fótboltans á blaðamannafundi út í KR. Willum Þór Þórsson þjálfar KR áfram en hann tók við liðinu af Bjarna Guðjónssyni eftir slaka byrjun og fór með liðið upp um sjö sæti og alla leið í Evrópusæti. Willum Þór gerir tveggja ára samning við Vesturbæjarfélagið og Arnar Bergmann Gunnlaugsson verður áfram aðstoðarmaður hans. Willum Þór þjálfaði KR einnig á árunum 2002 til 2004 en liðið varð þá Íslandsmeistari tvö fyrstu tímabil hans með liðið. Willum Þór hafði síðan þjálfað Val, Keflavík og Leikni auk þess að komast inn á þing fyrir Framsóknarflokkinn í millitíðinni. KR-liðið vann 9 af 13 leikjum sínum og tapaði aðeins tveimur eftir að Willum Þór tók við í lok júní. KR vann aðeins 2 af fyrstu 9 leikjum sínum undir stjórn Bjarna Guðjónssonar. Sumarið 2016 verður þrettánda tímabil Willums Þórs Þórssonar sem þjálfara í efstu deild en hann hefur stýrt alls liðum í 214 leikjum í efstu deild. Willum Þór hefur stýrt KR-liðinu í 67 af þessum leikjum. Willum hefur unnið fjóra stóra titla sem þjálfari, þrjá Íslandsmeistaratitla (KR 2002 og 2003, Valur 2007) og bikarmeistaratitil með Val 2005.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira