Avtoros Shaman kemst allt Finnur Thorlacius skrifar 18. nóvember 2016 12:04
Þessi rússneski Avtoros Shaman er enginn venjulegur torfærutrukkur. Hann er 8 hjóla og með stýringu á hverju hjóli sem gerir honum kleift að beygja fyrir þrengri horn en flestir jeppar og hann fer létt með að klífa 45 gráðu halla. Bíllinn er 6,3 metra langur, 4,8 tonn að þyngd og kostar 12,5 milljónir króna. Vélin í bílnum er frá Iveco og er 3,0 lítra og fjögurra strokka dísilvél sem er 176 hestöfl. Hámarkshraði bílsins er ekki hár, eða 80 km/klst, en þessi bíll er ekki ætlaður til hraðaksturs, heldur á hann að komast á leiðarenda og fáum tekst það vafalaust betur. Bíllinn er löglegur á venjulegum vegum, en til þess að geta keyrt hann þarf að hafa ökuskírteini sem leyfir akstur á svo þungum bíl. Kannski það allra merkilegasta við þennan bíl er að hann getur ekið í vatni og þarf ekki að snerta undirlagið, hann flýtur og kemst áfram með skrúfu sem kemur bílnum á rétt rúmlega gönguhraða yfir vatn. Einn kosturinn enn við bílinn er að hægt er að hafa svo lint í dekkjunum að hann skaða ekki náttúruna sem um er farið. Avtoros tók sér 10 ár að þróa þennan bíl og hefur selt á þriðja tug eintaka. Hann tekur allt að 10 manns í sæti og vel fer víst um farþegana. Þetta er kjörinn björgunarsveitabíll eða fyrir ferðaþjónustufyrirtæki. Það tekur Avtoros um tvo mánuði að smíða hvern bíl og sérsmíða má hvern bíl eftir þörfum kaupenda.Sæti ökumanns.Laglegasta innanrými og pláss fyrir 10 manns.
Bílar video Mest lesið Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana Innlent „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Innlent Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent Byrjaði skyndilega að taka konuna hálstaki og hélt í 40 sekúndur Innlent Grobba sig af stolnum trjám Innlent Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari Innlent „Stundum koma upp atvik“ Innlent