Þar nefnir hann helst rauðrófur því það er endalaust hægt að leika sér með þær segir hann.
Þótt hann sé hvorki fastheldinn á jólamat og meðlæti þykir honum alltaf gott að fá hamborgarhrygg, brúnaðar kartöflur, rauðkál og sósu.

með gott taco og nóg af guacamole.“
Hér gefur Haukur Már lesendum þrjár bragðgóðar og skemmtilegar uppskriftir að meðlæti með jólasteikinni.
Sýrðar rauðrófur
5-7 stk. rauðrófur
300 ml eplaedik
300 ml sykur
300 ml vatn
3 stk. kanilstöng
8 stk. anísstjörnur
10 stk. negulnaglar
Rauðrófur skornar í teninga og settar í box. Restin af hráefnunum sett í pott og suða fengin upp. Þá er vökvanum hellt sjóðandi heitum yfir rauðrófurnar. Látið standa við stofuhita í 30 mínútur. Hægt að bera fram kalt eða heitt.

5 stk. græn epli
200 g japanskt majónes (Kewpie)
100 g flórsykur
150 g þurrkuð trönuber
150 g heslihnetur
4 msk. léttþeyttur rjómi
Majónesinu og flórsykrinum blandað saman. Þurrkuðu berin söxuð og hnetur muldar niður. Skerið eplin í teninga og blandið þeim við majónesið. Blandið restinni af hráefninu út í. Gott að skreyta salatið með hnetum og trönuberjum.

1 kg skorið rauðkál
300 g púðursykur
300 ml rauðvínsedik
3 stk. kanilstangir
5 stk. stjörnuanís
8 stk. negulnaglar
100 ml trönuberjasafi
200 ml góður jólabjór
30 ml kirsuberjaedik
30 ml eplaedik
Salt til að smakka til
Allt hráefni utan bjórsins sett saman í pott og látið malla þar til rauðkálið er soðið (15-30 mín.). Bjórnum er bætt við rétt undir lokin. Smakkað til með ediki og salti.