Illa frænka hennar Delilah, sem er norn, og vondi karlinn Duke Abele frá Serkonos fremja blóðugt valdarán. Þá þarf annað hvort Emily eða Corvo að ganga af göflunum og stöðva valdaránið með því að elta uppi vitorðsmenn Delilah og Abele og drepa þá og annað fólk og þá meina ég fullt af fólki.
Hægt er að spila leikinn sem annað hvort Emily eða Corvo og þarf að velja á milli þeirra í byrjun leiksins. Það er ekki hægt að skipta á milli þeirra síðar. Þá eru bæði mjög hæfileikarík þegar kemur að því að laumast um og drepa fólk. Þar að auki eru þau bæði gædd ákveðnum töfrum sem þá fá frá nokkurs konar guði sem kallast The Outsider.
Þessi töfrabrögð gera mjög mikið fyrir leikinn og eru spilarar hvattir til að prófa sig áfram með þau til þess að koma óvinum sínum fyrir kattarnef. Vel heppnuð og frumleg tilraun getur skapað blóðuga og stórskemmtilega niðurstöðu.

Gervigreind óvinanna í Dishonored er yfirleitt mjög góð, þar sem þeir eru fljótir að sjá mann og safnast saman gegn spilurum. Það borgar sig ekki að vanmeta þá. Þá er hönnun borða leiksins einnig mjög góð og svo virðist sem það sé endalaust hægt að finna eitthvað nýtt. Spilarar geta komist á snoðir um verkefni og styttri leiðir í gegnum borðið með því að hlera samtöl persóna í leiknum og að lesa bréf og tímarit sem hafa verið skilin eftir á glámbekk, eða í íbúðum sem spilarar brjótast inn í.
Yfir heildina litið er Dishonored 2 góður og skemmtilegur leikur, sem hægt er að spila oft án þess að hann sé eins í hvert skipti. Söguþráður leiksins tekur um 12 til 16 klukkustundir, eftir því hvernig hann er spilaður. Möguleikarnir eru fleiri og betri en í fyrri leiknum og leikurinn er í raun betri upplifun.