Úrval Útsýn ræður þrjá nýja Sæunn Gísladóttir skrifar 19. desember 2016 16:55 Frá vinstri: Kristín Gunnarsdóttir, Luka Kostic, Jóhann Freyr Björgvinsson Mynd/Aðsend
Úrval Útsýn er leiðandi ferðaskrifstofa sem hefur þjónustað landsmenn um áratugaskeið. Vegna vaxandi umsvifa hefur Úrval Útsýn ráðið til sín reynslumikið fólk til að bæta enn frekar þjónustu við viðskiptavini sína segir í tilkynningu. Jóhann Björgvinsson hefur verið ráðinn sem sölustjóri Úrvals Útsýnar. Jóhann starfaði áður sem fararstjóri Úrvals Útsýnar á Tenerife í 5 ár og þekkir því vel inn á sólarlandamarkaðinn. Áður en Jóhann hóf störf í ferðageiranum starfaði hann erlendis um árabil við eigin rekstur í verslunarrekstri og framkvæmdastjórn. Kristín Gunnarsdóttir hefur verið ráðin sem framleiðslustjóri hópa- og sérferða Úrvals Útsýnar. Kristín hefur mikla reynslu úr ferðageiranum þar sem hún starfaði hjá Icelandair og öðrum ferðaskrifstofum á árunum 1980-2012. Síðustu árin hefur Kristín starfað hjá Seðlabankanum, þar sem hún sá um ferðir starfsmanna. Luka Kostic hefur verið ráðinn yfirmaður íþróttadeildar Úrvals Útsýnar. Luka þekkir vel til íþróttaferða þar sem hann vann hjá í íþróttadeild Úrvals Útsýnar á árunum 2009-2014. Síðustu 2 ár hefur hann rekið ferðaskrifstofuna Markferðir sem seldi íþróttaferðir. Luka kemur úr íþróttunum, er fyrrum knattspyrnumaður og sá síðar um þjálfun á yngri landsliðum í fótbolta. „Við erum mjög ánægð að fá svo góðan og reynslu mikinn liðsauka til okkar þar sem það hefur verið mikil aukning í borgarferðum , sérferðum og hópum á þessu ári. Það stefnir í enn frekari aukningu á næsta ári vegna aukins framboðs á flugi til og frá Íslandi. Núna fljúga 34 flugfélög til og frá landinu og hægt er að bóka þau öll í gegnum okkur, sérstaklega þægilegt fyrir fyrirtæki að nýta sér þá þjónustu hjá okkur,“ segir Þórunn Reynisdóttir forstjóri Ferðaskrifstofu Íslands sem rekur ferðaskrifstofurnar Úrval Útsýn, Sumarferðir og Plúsferðir.
Fréttir af flugi Mest lesið Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Eftir sumarið tekur við óvissa Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Sjá meira