Halldór Orri genginn í raðir FH Tómas Þór Þórðarson skrifar 21. desember 2016 13:45 Halldór Orri Björnsson fór yfir í næsta bæjarfélag. vísir/vilhelm
Stjörnumaðurinn Halldór Orri Björnsson er genginn í raðir Íslandsmeistara FH í Pepsi-deild karla í fótbolta en framherjinn öflugi skrifaði undir tveggja ára samning við Hafnafjarðarliðið í Kaplakrika í dag. Þetta eru ein stærstu félagaskipti vetrarins en Halldór Orri hefur verið ein af skærustu stjörnum deildarinnar síðan Garðabæjarliðið kom upp í efstu deild árið 2009. Halldór Orri skoraði 47 mörk í 106 leikjum fyrir Stjörnuna í Pepsi-deildinni frá 2009-2013 eða 0,44 mörk í leik þrátt fyrir að spila á kantinum. Hann missti af Íslandsmeistaratímabili Stjörnunnar árið 2014 þar sem hann var í atvinnumennsku, en hann kom aftur fyrir sumarið 2015 og hefur skorað níu mörk í 40 leikjum undanfarin tvö tímabil. Halldór Orri spilaði alla 22 leikina í Pepsi-deildina í sumar, þar af 19 sem byrjunarliðsmaður. Hann skoraði fimm mörk og lagði upp önnur fimm er Stjarnan hafnaði í öðru sæti deildarinnar og nældi sér í Evrópusæti. Hann hefur í heildina spilað 146 leiki og skorað 56 mörk fyrir Stjörnuna í Pepsi-deildinni og er langmarkahæsti leikmaður liðsins í efstu deild. Þá er hann næst leikjahæstur í efstu deild á eftir miðverðinum Daníel Laxdal. Halldór Orri er annar Stjörnumaðurinn sem FH fær til sín eftir að tímabilinu lauk en áður var mættur Veigar Páll Gunnarsson. FH er því búið að fá til sín tvo af fimm leikjahæstu mönnum Stjörnunnar í efstu deild frá upphafi. Auk Stjörnumannanna tveggja er FH einnig búið að fá til sín Guðmund Karl Guðmundsson, fyrirliða Fjölnis, og Vigni Jóhannesson, markvörð úr Selfossi.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Enski boltinn Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Körfubolti Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira