Martin Lund úr Fjölni í Breiðablik Tómas Þór Þórðarson skrifar 2. janúar 2017 09:10 Martin Lund Pedersen fór í lið sem endaði neðar en Fjölnir. vísir/ernir
Danski framherjinn Martin Lund Pedersen sem fór á kostum með Fjölni í Pepsi-deild karla í fótbolta síðasta sumar er genginn í raðir Breiðabliks. Þetta kemur fram á heimasíðu Blika. Martin Lund skrifar undir eins árs samning við Blika en þessi fljóti og marksækni leikmaður skoraði níu mörk í 22 leikjum fyrir Fjölni á síðustu leiktíð og lagði upp önnur fimm. Með Danann í stuði náði Fjölnir að bæta sinn besta árangur í efstu deild en liðið hafnaði í fjórða sæti. „Það var ekki auðvelt að kveðja Fjölnisliðið enda átti ég góðan tíma í Grafarvoginum síðasta sumar. Mér stóðu margir möguleikar til boða eftir tímabilið en að lokum ákvað ég að ganga til liðs við Breiðablik,“ segir hinn 25 ára gamli Martin Lund. „Mér líst vel á alla umgjörð hjá félaginu. Ég tel að með þeim þjálfurum og leikmönnum sem þar eru til staðar félagið hafi félagið frábæran efnivið til að ná mjög langt á næsta tímabili. Ég hlakka til að taka slaginn með Kópavogsliðinu í Pepsí-deildinni næsta sumar.“ Martin Lund er kærkomin viðbót í lið Blika en liðið átti í miklu basli með að skora á síðustu leiktíð. Það skoraði aðeins 27 mörk í 22 leikjum eða fæst mörk allra liða sem voru í baráttu um Evrópusæti. Blikar höfnuðu í sjötta sæti Pepsi-deildarinnar á síðustu leiktíð.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson Enski boltinn Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Enski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Enski boltinn Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira