Söguhetja Nioh er Bretinn William sem ferðast til Japan í kringum 1600 til þess að stöðva óvini sína. Þar er hann fenginn til þess að berjast við hina ýmsu djöfla og í grunninn koma í veg fyrir að vondir karlar noti töfrasteina til að taka yfir heiminn.
Þegar William deyr, og hann mun deyja oft, missir hann þá reynslupunkta sem búið er að safna og spilarar þurfa að ferðast aftur á staðinn þar sem hann dó til að ná þeim aftur, eða missa þá. Svipað og í Dark Souls leikjunum.
Þá þarf ekki bara að huga að lífi William heldur einnig orku hans, eða þreki. Það gengur ekki upp að berja á alla takka eins hratt og hægt er, því spilarar þurfa að vanda sig í bardögum, eða deyja.

Einn stíllinn gefur þyngri högg sem kosta meiri orku og William er ekki jafn frár á fæti. Annar stíll gefur léttari högg sem kosta minni orku og William er sneggri. Þriðji stíllinn er svo mitt á milli.
Ofan á það getur William lært mismunandi árásir og brögð, með mismunandi vopnum, galdra og hvernig hann getur verið Ninja. Eins og áður segir, þá er dýptin og fjölbreytnin mikil.

Nioh lítur vel út, en hann var eingöngu gefinn út fyrir PS4. Heimurinn er dökkur og drungalegur og skrímslin sem William þarf að berjast gegn eru skemmtilega hönnuð. Brynjur og vopn líta sömuleiðis vel út, en þau eru fjölbreytt og skemmtileg.
Þeir spilarar sem ákveða að skella sér til Japan í kringum árið 1600 þurfa að vera tilbúnir til að verja miklum tíma þar. Þeir þurfa einnig að vera tilbúnir til að takast á tímum við mikla reiði og pirring. Það er fátt meira pirrandi en að hafa verið að hamast á einhverjum endakarli um langt skeið og komast nálægt því að ganga frá honum, en misreikna sig aðeins og vera drepinn í einu höggi.
Það mun taka metnaðarfulla spilara mjög margar klukkustundir að fara í gegnum Nioh. Framleiðendur leiksins hafa sagt að að meðaltali muni það taka 70 klukkustundir.