Tveir leikmenn ÍA leggja skóna á hilluna Tómas Þór Þórðarson skrifar 10. mars 2017 13:10 Ármann Smári Björnsson sleit hásin á móti KR. vísir/ernir
Ármann Smári Björnsson, fyrirliði ÍA í Pepsi-deild karla í fótbolta, hefur lagt skóna á hilluna og verður því eðlilega ekki með liðinu í sumar. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Skagamönnum en þar kemur fram að Ármann Smári meiddist illa undir lok síðustu leiktíðar þegar hann sleit hásin á móti KR. Ármann Smári gekk til liðs við ÍA fyrir leiktíðina 2012 þegar hann kom til landsins eftir atvinnumennsku í Noregi og Englandi og hefur staðið í vaktina í miðju varnarinnar undanfarin fimm ár. Einnig hefur hann verið fyrirliði liðsins síðan sumarið 2014. Ármann sem er 36 ára spilaði alls 169 leiki fyrir félagið og skoraði ellefu mörk. „Það hefur verið frábært að spila fyrir ÍA. Það er eiginlega ótrúlegt og erfitt að lýsa því. Þetta er stórt félag og bærinn snýst allur um þetta. Það eru allir með,“ segir Ármann Smári Björnsson. Ármann Smári er ekki eini leikmaðurinn sem neyðist til að hætta vegna meiðsla því Skotinn Iain WIlliamson, sem gekk í raðir Skagamanna frá Víkingi í haust eftir að vera þar á láni síðasta sumar, er hættur í fótbolta. Fótbolti.net greinir frá. Williamson lætur nú staðar numið á sínum fótboltaferli aðeins 29 ára vegna þrálátra meiðsla í mjöðm sem hafa hrjáð hann undanfarin ár. Williamson kom fyrst til Íslands árið 2012 og spilaði þá með Grindavík en hann var svo hjá Val og Víkingi áður en hann fór til ÍA.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Enski boltinn Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Körfubolti Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira