Sjö ár frá síðasta sigri ÍBV í Garðabæ Tómas Þór Þórðarson skrifar 6. maí 2017 06:00 Hilmar Árni Halldórsson og Sindri Snær Magnússon í baráttunni á Samsung-vellinum á síðustu leiktíð. Fréttablaðið/Eyþór
Önnur umferð Pepsi-deildar karla í fótbolta fer af stað á sunnudaginn með tveimur leikjum þegar Stjarnan tekur á móti ÍBV á Samsung-vellinum í Garðabænum og Ólafsvíkingar fá meistaraefnin í KR í heimsókn á Snæfellsnesið. Eyjamönnum hefur gengið bölvanlega í Garðabæ undanfarin ár en sjö ár eru frá síðasta deildarsigri liðsins á móti Stjörnunni á útivelli. ÍBV vann aftur á móti bikarleik liðanna á Samsung-vellinum á síðustu leiktíð nokkuð sannfærandi en verr hefur gengið í deildinni. Síðast vann ÍBV deildarsigur í Garðabænum þegar Tryggvi Guðmundsson og Úkraínumaðurinn Denis Sytnik skoruðu mörkin í 2-0 sigri árið 2010 en það ár var ÍBV í baráttu um Íslandsmeistaratitilinn. Síðan þá hafa Garðbæingar unnið fimm heimaleiki af sex á móti ÍBV í Pepsi-deildinni og einu sinni skildu liðin jöfn. Stjarnan og ÍBV gerðu bæði jafntefli í fyrstu umferðinni. Stjarnan gerði 2-2 jafntefli við nýliða Grindavíkur á útivelli en ÍBV gerði markalaust jafntefli við Fjölni á heimavelli þar sem miðvörðurinn sterki, Hafsteinn Briem, fékk rautt spjald. Hann verður ekki með í leiknum á sunnudaginn. KR og Víkingur Ólafsvík hafa aðeins mæst fjórum sinnum í efstu deild en í bæði skiptin sem KR hefur heimsótt Ólsara hafa þeir farið heim með þrjú stig eftir 1-0 sigur. KR hefur unnið þrjá af fjórum leikjum liðanna í efstu deild en einn þeirra, deildarleikurinn í Vesturbænum í fyrra, lyktaði með jafntefli. Pálmi Rafn Pálmason skoraði eina mark KR á síðustu leiktíð þegar það heimsótti Ólsara vestur en bæði lið töpuðu í fyrstu umferð Pepsi-deildarinnar í ár. KR tapaði fyrir Víkingi Reykjavík á heimavelli en Ólsarar lágu í valnum á móti Valsmönnum á útivelli. - tom
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson Enski boltinn Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Enski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Enski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira