Ólafur fór sjálfur fram á að fá að koma fyrir nefndina og útskýra mál sitt. Hann neitar því staðfastlega að hafa staðið í blekkingum við íslenska ríkið við kaupin á bankanum á sínum tíma.

Fundurinn með Kjartani og Finni verður ekki opinn fjölmiðlum en það staðfestir Jón Steindór Valdimarsson, varaformaður nefndarinnar, í samtali við Kjarnann.
Sjá einnig: Ævintýramaðurinn Ólafur Ólafsson
Sterkur orðrómur hafði verið uppi í áraraðir um að þýski bankinn Hauck & Aufhäuser hafi verið leppur annarra félaga við kaup S-hópsins á Búnaðarbankanum. Skýrsla rannsóknarnefndarinnar sýndi blekkingarnar sem beittar voru svart á hvítu.
„Niðurstöður skýrslunnar eru studdar þannig gögnum að um þetta verður ekki deilt meir,“ sagði Finnur Vilhjálmsson, starfsmaður rannsóknarnefndar Alþingis, um söluna á Búnaðarbankanum í samtali við Fréttablaðið.
Vorið 2016 fékk Umboðsmaður Alþingis ábendingu um málið sem þótti svo traust að sett var af stað rannsókn á kaupunum. Rannsóknarnefnd var skipuð í þeim tilgangi að varpa ljósi á hvernig raunverulega var staðið að sölunni.