Stjörnumaðurinn Hilmar Árni Halldórsson sýndi enn og aftur hversu góður spyrnumaður hann er í bikarleiknum gegn KR á sunnudaginn.
Hilmar Árni kom Stjörnunni yfir með afar umdeildu marki strax á upphafsmínútunni og skoraði svo glæsilegt mark beint úr aukaspyrnu á 39. mínútu.
„Þetta er bara eins og víti fyrir hann. Þessi drengur er svakalegur í þessu, að hafa þetta vopn,“ sagði Grétar Sigfinnur Sigurðarson um aukaspyrnumark Hilmars Árna í Borgunarbikarmörkunum á Stöð 2 Sport HD í gær.
„Þetta er einn besti leikmaður deildarinnar og það er ótrúlega erfitt að verjast honum. Hann er orðinn svo heill leikmaður.“
Tómas Þór Þórðarson furðaði sig á því af hverju Hilmar Árni er aldrei orðaður við atvinnumennsku.
„Ég skil ekki af hverju það er aldrei talað um Hilmar Árna sem verðandi atvinnumann? Af hverju getur hann ekki fengið 4-5 tímabil í Tromsö eða Stabæk. Hann hefur allt,“ sagði Tómas Þór.
Innslagið úr Borgunarbikarmörkunum má sjá í spilaranum hér að ofan.
Borgunarbikarmörkin: Af hverju er aldrei talað um Hilmar Árna sem verðandi atvinnumann?
Tengdar fréttir

Kristinn um mark Stjörnunnar: Upphafsspyrnan var ólögleg
Markið sem Stjarnan skoraði á upphafsmínútunni gegn KR hefði ekki átt að standa að mati formanns dómaranefndar KSÍ.

Sjáðu markið sem gerði KR-inga brjálaða | Myndband
Stjarnan skoraði kolólöglegt mark á fyrstu mínútu í bikarleik liðsins gegn KR í gærkvöldi.

Guðjón: Átti ekki einu sinni orku til að fagna
Hetja Stjörnumanna var að vonum kátur í leikslok.

Borgunarbikarmörkin: Það er enginn að fara að verja Þorvald Árnason
Stjarnan sló KR úr leik í 8-liða úrslitum Borgunarbikarsins á sunnudaginn var. Guðjón Baldvinsson skoraði sigurmarkið í uppbótartíma.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - KR 3-2 | Guðjón örlagavaldurinn í Garðabænum
Guðjón Baldvinsson tryggði Stjörnunni sæti í undanúrslitum Borgunarbikars karla þegar hann skoraði sigurmarkið gegn KR þegar fjórar mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma.