99 laxar á einum degi í Miðfjarðará Karl Lúðvíksson skrifar 17. júlí 2017 14:14 Það veiddust 99 laxar í Miðfjarðará í gær Mynd: Miðfjarðará Lodge FB
Veiðin í Miðfjarðará fór vel af stað í sumar en það sem flestir hafa verið að bíða eftir er augnablikið þegar veiðin tekur þetta ævintýralega stökk sem virðist gerast á hverju ári. Í gær er víst óhætt að segja að veiðin í ánni hafi verið frábær en samtals komu 99 laxar á land á deginum á stangirnar tíu. Góðar göngur eru í ánna og það er farið að bera vel á eins árs laxi en að sama skapi virðist hlutfall af tveggja ára laxi ennþá vera með besta móti. Laxinn er vel haldinn og ber þess merki að hafa haft það gott í sjónum síðusta ár. Síðasta vika gaf um 300 laxa og það styttist í að 1000 laxa múrinn verði rofinn. Samanburður á veiðinni á þessum tíma milli áranna 2015 og 2016 gefur það til kynna að þetta verði gott ár í Miðfirðinum því árið 2015 var veiðin á sama tíma um 700 laxar og þá var heildarveiðin 6028 laxar. Sumarið 2016 var heildarveiðin 4338 laxar á á sama tíma á því ári voru komnir 1077 laxar. Miðað við þetta virðist Miðfjarðará stafna í 4000-5000 laxa sumar hið minnsta og heldur þá áfram sá frábæri gangur sem hefur verið í ánni síðustu ár.
Mest lesið Minnivallalækur tekur við sér Veiði 106 sm lax úr Haukadalsá Veiði Vaxandi veiði á sjóbirting í Eyjafjarðará Veiði Fyrsti laxinn á land í Ytri Rangá Veiði Góðar göngur í árnar á Vesturlandi Veiði Fimm milljóna tjón vegna kjúklinga og klósettpappírs Veiði Veiðileyfasala komin á fullt Veiði Hraunsfjörður að vakna til lífsins Veiði Minni laxveiði en 2014 Veiði Misvísandi skilaboð frá LV varðandi útboð og hækkanir Veiði