Hraunsfjörður hefur verið vel sóttur í sumar og það eru margir veiðimenn sem hafa verið að gera fína veiði þar á sjóbleikju.
Sjóbleikjuveiðin er þó eins og margir þekkja afar dyntótt og suma daga er hún vel sýnileg þegar hún syndir um í vatninu en lítur ekki við neinu agni sem fyrir hana er borið. Það ber þó á að þær bleikjur sem þó taka flugu eru stútfullar af marfló og eftirlíking af henni í grænum litum hefur verið að gefa einna best.
Það er líka farið að bera á laxi í vatninu en í fyrradag lágu í það minnsta 20 laxar við stífluna en þrátt fyrir góða viðleitni þeirra veiðimanna sem reyndu við þá var ekki litið við neinu agni. Júlí er oft feykna góður mánuður í Hraunsfirði og bleikjan fer oft að taka betur og betur sem og laxinn. Þetta er eitt af þeim vatnasvæðum sem þarf að leggja smá vinnu í að kynna sér og sú vinna er alltaf vel þess virði.
Laxinn er mættur í Hraunsfjörðinn
