Forstjóri og fjármálastjóri Icelandair Group keyptu í gær hlutabréf í félaginu fyrir tæpar átján milljónir króna. Forstjórinn, Björgólfur Jóhannsson, keypti 500 þúsund hluti á genginu 14,33 krónur á hlut og nam kaupverðið þannig 7,2 milljónum króna, og Bogi Nils Bogason fjármálastjóri keypti 750 þúsund hluti á genginu 14,1. Nam kaupverðið því 10,6 milljónum króna.
Hlutabréf í Icelandair ruku upp um 6,7 prósent í verði, í 1,2 milljarða króna í viðskiptum í gær, en mesta hækkunin kom til eftir að tilkynnt var um umrædd kaup Björgólfs og Boga.
Eftir kaupin á forstjórinn 1,9 milljón hluti í Icelandair Group að virði 27,4 milljónir króna og fjármálastjórinn 1,75 milljón hluti að virði 25,2 milljónir króna, miðað við gengi bréfanna í gær.
Hlutabréf í Icelandair Group hafa lækkað um 35 prósent í verði síðan félagið sendi frá sér svarta afkomuviðvörun í byrjun febrúarmánaðar fyrr á árinu. Samkvæmt henni var gert ráð fyrir að EBITDA-hagnaður Icelandair – afkoma fyrir fjármagnsliði, skatta og afskriftir – yrði 140 til 150 milljónir dala og dragast saman um 30 prósent í ár. Hefur afkomuspáin nú verið hækkuð í 150 til 160 milljónir dala. – kij
Forstjórinn og fjármálastjórinn keyptu fyrir 18 milljónir

Tengdar fréttir

Hlutabréf Icelandair lækkað um 40%
Bréfin féllu um 3,3 prósent í verði í rúmlega 560 milljóna króna viðskiptum í gær, en alls hefur gengi bréfanna fallið um tæp sextán prósent síðustu sjö daga.

Icelandair enn í vanda statt
Hlutabréf í Icelandair Group féllu um 7,7 prósent í verði eftir að félagið birti uppgjör fyrir annan fjórðung ársins. Þrátt fyrir tekjuvöxt á milli ára eru enn blikur á lofti. Búast má við aukinni samkeppni.

Hlutabréf í Icelandair lækka verulega
Gengi hlutabréfa í Icelandair hafa lækkað um 5,88 prósent í 456 milljóna króna viðskiptum það sem af er degi.