Góðar reglur Guðmundur Steingrímsson skrifar 19. september 2017 06:00 Sé maður í stjórnmálum og hafi gert upp á bak er gott að hafa vissar reglur í huga. Þessar reglur kann fólk vel sem hefur stundað stjórnmál í almennilegum flokkum. Þær eru lykillinn að stöðugleika og traustu stjórnarfari. Hafi maður til dæmis orðið óverðskuldað uppvís að því að skipuleggja peningaþvætti, selja vopn, kokka amfetamín, búa til fölsuð vegabréf eða vera handrukkari er góð regla að reyna að þegja um það. Það er ekkert víst að það mistakist. Fólk hefur almennt mikið að gera, er mikið uppi í bústað eða að horfa á Game of Thrones. Það er líklegt að það nenni ekki að spá í þig. Ef þetta tekst ekki er mikilvægt að leggja drög að yfirlýsingu. Ekki gefa út yfirlýsingu fyrr en allt er komið í klessu. Þá verða áhrifin mest. Yfirlýsingin skal einkennast af þessum meginatriðum: Ekkert af umræddum verknaði var þér að kenna. Hafirðu lent í slag inni á klósetti á skemmtistað er til dæmis gott að segja „svo óheppilega vildi til að hönd mín lenti eftir röð atburða í andliti annars manns“ og svo framvegis. Segðu að ekkert í atburðarásinni bendi til að þú hafir beinlínis verið að verki. Gott er líka að bæta inn í að á umræddum degi hafir þú verið annars hugar vegna þess að þú áttir að flytja mikilvægt erindi hjá góðgerðarsamtökum. Auk þess hafir þú gefið blóð og sofið illa. Fullyrtu líka að margir menn segi að árásirnar sem þú hafir nú orðið fyrir spretti af mjög vafasömum hagsmunum og að þú munir aldrei – og endurtaktu það af ákveðni „aldrei“ – gefast upp í baráttunni við slík öfl. Segðu svo að þú sért reiðubúinn að biðja fólk mögulega, jafnvel, afsökunar ef svo ólíklega vilji til að þess gerist hugsanlega þörf. Lýstu því svo yfir að málinu sé lokið af þinni hálfu. Ef þetta bregst, sem það gerir auðvitað ekki, segðu þá af þér nokkrum vikum síðar með annarri álíka yfirlýsingu. Farðu svo heim til þín og búðu til strádúkkur af andstæðingum þínum. Stingdu í þær prjónum. Liggðu í fósturstellingu þess á milli og reyndu að slaka á. Gott er að sjúga þumalinn. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Guðmundur Steingrímsson Mest lesið Hvers vegna var Úlfar rekinn? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Um styttingu vinnuvikunnar í leikskólum Reykjavíkurborgar, ákall um leiðréttingu Anna Margrét Ólafsdóttir,Hafdís Svansdóttir,Jónína Einarsdóttir Skoðun Ríkisstjórnin ræðst gegn ferðaþjónustu bænda Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir Skoðun Að apa eða skapa Rósa Dögg Ægisdóttir Skoðun Gangast við mistökum Júlíus Birgir Jóhannsson Skoðun Að reyna að „tímasetja“ markaðinn - er það góð strategía? Baldvin Ingi Sigurðsson Skoðun Eru forsætisráðherra og ríkisstjórn hrædd við vilja fólksins; lýðræðið? Ole Anton Bieltvedt Skoðun Að vilja meira og meira, meira í dag en í gær Harpa Fönn Sigurjónsdóttir Skoðun Lífsnauðsynlegt aðgengi Bryndís Haraldsdóttir Skoðun Kallað eftir málefnalegri umræðu um kröfur um íslenskukunnáttu Eiríkur Rögnvaldsson Skoðun
Um styttingu vinnuvikunnar í leikskólum Reykjavíkurborgar, ákall um leiðréttingu Anna Margrét Ólafsdóttir,Hafdís Svansdóttir,Jónína Einarsdóttir Skoðun
Eru forsætisráðherra og ríkisstjórn hrædd við vilja fólksins; lýðræðið? Ole Anton Bieltvedt Skoðun
Um styttingu vinnuvikunnar í leikskólum Reykjavíkurborgar, ákall um leiðréttingu Anna Margrét Ólafsdóttir,Hafdís Svansdóttir,Jónína Einarsdóttir Skoðun
Eru forsætisráðherra og ríkisstjórn hrædd við vilja fólksins; lýðræðið? Ole Anton Bieltvedt Skoðun