Sevilla náði í stig á Anfield | Sjáðu mörkin Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 13. september 2017 20:30 Liverpool og Sevilla skildu jöfn, 2-2, á Anfield í E-riðli Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Sevilla fékk sannkallaða draumabyrjun þegar Wissam Ben Yedder kom liðinu yfir strax á 5. mínútu. Eftir markið tók Liverpool völdin og þjarmaði að Sevilla. Pressan bar árangur á 21. mínútu þegar Roberto Firmino skoraði með skoti af stuttu færi eftir fyrirgjöf Albertos Moreno. Á 37. mínútu kom Mohamed Salah Liverpool í 2-1. Fimm mínútum síðar fékk Firmino gullið tækifæri til að skora þriðja mark Liverpool en skaut í stöngina úr vítaspyrnu. Staðan var 2-1 í hálfleik og allt fram á 72. mínútu þegar Joaquín Correa jafnaði metin. Joe Gomez, hægri bakvörður Liverpool, fékk að líta sitt annað gula spjald og þar með rautt í uppbótartíma. Það breytti þó engu um úrslitin. Lokatölur 2-2. Meistaradeild Evrópu
Uppgjörið: Tindastóll - Stjarnan 110-97 | Stólarnir svöruðu og leiða nú úrslitaeinvígið Körfubolti
Þeir bestu (40.-31. sæti): Gullfundur í Góða hirðinum, galdurinn í Garðabænum og költhetjan Íslenski boltinn
Þeir bestu (50.-41. sæti): Skagamiðverðir, markahrókar úr Eyjum og Laugardalnum og öldungurinn aftast
Uppgjörið: Tindastóll - Stjarnan 110-97 | Stólarnir svöruðu og leiða nú úrslitaeinvígið Körfubolti
Þeir bestu (40.-31. sæti): Gullfundur í Góða hirðinum, galdurinn í Garðabænum og költhetjan Íslenski boltinn