Það virðist fátt geta stöðvað lið Man. City sem vann sigur, 2-1, á toppliði ítölsku úrvalsdeildarinnar, Napoli, í Meistaradeildinni í kvöld.
City byrjaði leikinn með látum er Raheem Sterling kom þeim yfir á 9. mínútu og Gabriel Jesus tvöfaldaði forskotið fjórum mínútum síðar.
Diwara skoraði úr víti í síðari hálfleik en það dugði ekki til.
City er á toppi F-riðils með fullt hús. Níu stig í þremur leikjum en Napoli er aðeins með þrjú stig.
Man. City er enn með fullt hús
