Glamour

Klæddist 800 þúsund króna stígvélum á körfuboltaleik

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Fyrirsætan Kendall Jenner lætur sig ekki vanta á körfuboltaleiki þessa dagana og þá sérstaklega ef um er að ræða leiki með LA Clippers en nýr kærasti Jenner, Blake Griffin, spilar með liðinu. 

Jenner stal senunni á leik á laugardaginn þar sem hún klæddist hinum eftirsóttu demantastígvélum frá Saint Laurent en stígvélin er uppseld og kosta tæpar 800 þúsund íslenskar krónur.

Hnéháu stígvélin eru að koma sterk inn þennan veturinn og auðvitað væri ekkert verra að eiga eitt stykki svona fyrir komandi hátíðartíð.  



×