
Útskorið borð
Fyrsta húsgagnið sem Dóra hannaði er borð úr þykkum rekaviðarborðum, sett saman úr járnstöngum og ein fjölin er handútskorin af Jóni Adolf Steinólfssyni.„Þarna í miðju hruninu var ég að leita í ræturnar og prófa að nota eitthvað þjóðlegt og færa það í nútímalegan búning. Rekaviðurinn er eini smíðaviðurinn sem við Íslendingar höfum haft í gegnum tíðina og mér finnst saga hans svo skemmtileg. Rekaviður var lengi vel notaður til að smíða báta og var mikilvægt burðarefni í hús,“ segir Dóra en hún fær rekaviðinn hjá bónda á Ströndum.
„Þetta er langt ferli og mætti kalla „slow-design“. Bóndinn dregur viðinn í land fyrir mig, ég kem honum í bíl og keyri í sumarbústaðinn minn og þurrka hann þar. Það sem ég hanna úr viðnum er dálítið dýrt, en það er líka sérstakt og ekki fjöldaframleitt. Það er heilmikil vinna á bak við hvert verk,“ bætir Dóra við.
Að hennar sögn hefur orðið vitundarvakning á meðal fólks og æ fleiri sem kunna að meta vandaða hönnun sem stenst tímans tönn.
„Margir hafa þá stefnu að kaupa aðeins hönnun eftir fólk sem er enn á lífi, en mér finnst eitthvað fallegt við það.“

Lampar og ljós úr lerki
Dóra hef hannað tvær línur sem samanstanda af lömpum og ljósum úr íslensku lerki og rekavið.„Ég vel ekki auðveldasta viðfangsefnið með því að hanna lampa og ljós. Það eru að sjálfsögðu miklar öryggiskröfur og svo þarf lýsingin að vera góð en ég hef einmitt lagt mig fram um að ná henni sem best. Fyrsti lampinn sem ég hannaði ber nafnið Tindur og ég fékk aðstoð frá Lumex við að koma honum á koppinn. Tindur er til í þremur stærðum og hann er með óbeina lýsingu til hliðanna og lýsir auk þess beint niður. Minnsta stærðin hangir t.d. í Mathúsinu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Borðlamparnir sem ég hanna eru með stemningslýsingu.“
Hönnun Dóru má sjá í Ráðhúsi Reykjavíkur seinna í þessum mánuði en auk þess er fjallað um lampann Tind í nýrri hönnunarbók sem Forlagið var að gefa út, Hönnun – leiðsögn í máli og myndum.
„Ákveðið var að vera með sér-kafla um íslenska hönnun og ég var svo heppin að Tindur, lampinn sem ég hannaði, var valinn til að vera með. Það er skemmtilegt að sjá íslenska hönnun í þessu alþjóðlega samhengi í bókinni. Helsti munurinn á erlendri og íslenskri hönnun er að við erum heldur frjáls í okkar sköpun. Ástæðan er talin vera sú að við höfum ekki jafn mikla hefð til að byggja á og flestar aðrar þjóðir og erum enn leitandi og svolítið ævintýraleg í því sem við erum að gera,“ segir Dóra.
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðunni dorahansen.is.
