Myndin gerist á áttunda áratug síðustu aldar og segir frá blaðamönnum á The Washington Post og The New York Times sem birtu Pentagon-gögnin sem vörðuðu afskipti bandarískra stjórnvalda af Víetnam frá árinu 1945 til ársins 1967.
Þetta tímabil varðaði fjóra forseta Bandaríkjanna og þótti meðal annars sýna að stjórn Lyndon B. Johnson laug ekki aðeins ítrekað að almenningi heldur einnig að bandaríska þinginu.

Sá sem lak gögnunum er Daniel Ellsberg sem var sakaður um samsæri gegn Bandaríkjunum, njósnir og þjófnaði á eignum bandaríska ríkisins. Málarekstri gegn honum var hætt þegar þeir sem rannsökuðu Watargate-skandalinn komust að því að starfsmenn Hvíta hússins, þegar Richard Nixon var þar við völd, höfðu kallað til svokallaða „pípara“ Hvíta hússins til að sverta mannorð Ellsberg með öllum tiltækum ráðum.
Má segja að þessi mynd, The Post, sé nokkurskonar óformlegur forleikur myndarinnar All The Presidents Men frá árinu 1976 og skartaði Dustin Hoffman og Robert Redford í aðalhlutverkum. Sú mynd sagði frá blaðamönnum The Washington Post, Bob Woodward og Carl Bernstein, sem komust á snoðir um Watargate-hneykslið.

Hún verður frumsýnd hér á landi 19. janúar.
Nokkrir gagnrýnendur hafa séð myndina og fær hún fína dóma frá The Hollywood Reporter, Village Voice, Daily Beast , The Telegraph, Pajiba og Vanity Fair.
Hún er metin 84 prósent fersk á vef Rotten Tomatoes þegar þetta er ritað.
Meryl Streep og Tom Hanks eru ekki einu leikararnir í þessari mynd. Í henni fara einnig með veigamikil hlutverk Sarah Paulson, Bob Odenkirk, Tracy Letts, bradley Whitford, Bruce Greenwood og Matthew Rhys.