Harry Bretaprins og bandaríska leikkonan Meghan Markle trúlofuðu sig í nóvember og sendi þá breska konungsfjölskyldan frá sér tilkynningu um málið.
Þau munu ganga í hjónaband 19. maí. Harry upplýsti ömmu sína, Elísabetu drottningu, um málið, sem og öðrum nánum fjölskyldumeðlimum í nóvember og fór um leið af stað ferli til að undirbúa brúðkaup ársins 2018.
Parið, sem hefur saman frá því í júlí 2016 en brúðkaupið fer fram næsta vor í kapellu heilags Georgs í Windsor-kastala.
Konungsfjölskyldan mun borga fyrir brúðkaupið, þar á meðal fyrir athöfnina, veisluna, tónlistaratriði og blómin.
Harry og Meghan munu verja jólunum saman á Sandringham-setrinu með Elísabetu Englandsdrottningu, ömmu Harry.
Nú birtir slúðurmiðillinn TMZ teikningar af mögulegum brúðarkjól Meghan Markle en hönnuðurinn Inbal Dror hefur staðfest að konungsfjölskyldan hafi haft samband við sig um málið.
Hér má sjá teikningarnar sjálfar en ekki er ljóst hvort Markle hafi ákveðið að klæðast kjól eftir Dror.
Teikningarnar af mögulegum brúðarkjól Meghan Markle

Tengdar fréttir

Meghan Markle frumsýndi trúlofunarhringinn
Harry Bretaprins og bandaríska leikkonan Meghan Markle eru trúlofuð en þetta kom fram í tilkynningu frá bresku konungsfjölskyldunni í morgun.

Bikarúrslitaleikurinn á sama degi og konunglega brúðkaupið
Harry Bretaprins gengur að eiga Meghan Markle laugardaginn 19. maí á næsta ári.

Harry og Meghan ganga í það heilaga þann 19. maí
Harry Bretaprins og bandaríska leikkona Meghan Markle munu ganga í það heilaga þann 19. maí 2018.

Hver er Meghan Markle?
Harry Bretaprins og Meghan Markle munu ganga í hjónaband næsta vor.

Harry prins og Meghan Markle trúlofuð
Harry Bretaprins og bandaríska leikkonan Meghan Markle eru trúlofuð.