Tuttugu þúsund manns sáu myndina í Svíþjóð um liðna helgi, sem er met fyrir finnska mynd.
Leikstjóri myndarinnar er Aku Louhimies en myndin er er byggð á samnefndri skáldsögu rithöfundarins Väinö Linna frá árinu 1954. Sagan hefur tvisvar áður ratað á hvíta tjaldið, 1955 og 1985.
Myndin var frumsýnd 27. október síðastliðinn í tilefni af hundrað ára sjálfstæðisafmælis Finna. Myndin segir frá því þegar ungum mönnum úr öllum landshornum Finnlands og flestum þjóðfélagsþrepum var safnað saman og sendir til að berjast við Sovétríkin í því sem Finnar hafa kallað framhaldsstríðið 1941 til 1944.
Óþekkti hermaðurinn er ekki aðeins að slá áhorfsmet í Finnlandi heldur hefur myndin einnig slegið heimsmet sem James Bond myndin Spectre átti. Í Óþekkta hermanninum eru sprengd upp 64,8 kíló af sprengiefni í einni senu, en fyrra metið átti Spectre sem hljóðaði upp á 33 kíló af sprengiefnum.
Atriðið sem um ræðir sýnir þegar rússneskt skotbyrgi er sprengt í loft upp. Sprengingin var framkvæmd við gamla herstöð á svæði þar sem átti að fella tré vegna fyrirhugaðra framkvæmda.
Maðurinn sem sá um sprenginguna við tökur myndarinnar er Duncan Capp, sem hefur unnið við Batman Begins og Troy, en hann sagði við Screen Daily að tökuteymið hefði ekki gert sér grein fyrir að metið hefði verið slegið.
„Við vissum að við hefðum notað umtalsvert magn af sprengiefni. Það var ekki fyrr en við höfðum lokið við tökur að við áttuðum okkur á því að við höfðum notað mun meira miðað við fyrra metið.
Leikstjóri myndarinnar er sagður nú vinna að því að gera fimm þátta sjónvarpsseríu úr myndinni þar sem hver þáttur verður fimmtíu mínútur að lengd.
Myndin hefur sterka Íslandstengingu en meðframleiðendur hennar eru Ingvar Þórðarson og Júlíus Kemp hjá framleiðslufyrirtækinu Kisa.