Á bílasýningunni í Genf í mars verður tilkynnt um þá þrjá bíla sem koma til greina sem bíll ársins og endanlegt val verður svo tilkynnt á bílasýningunni í New York í apríl. Aðeins einn bílaframleiðandi á meira en einn bíl í úrslitum nú, þ.e. Land Rover sem framleiðir einnig Range Rover bíla. Koma bílarnir í úrslitum nú frá Ítalíu, Japan, Kóreu, Bretlandi, Þýskalandi og Svíþjóð, þó svo Volvo sé í eigu Geely frá Kína. Fimm af bílunum 10 eru jepplingar eða jeppar og er það lýsandi fyrir áherslurnar í bílaframleiðslu nú um stundir.
Í leiðinni var tilkynnt um hvaða 5 bílar eru komnir í úrslit í vali á lúxusbíl ársins (2018 World Luxury Car of the Year) og eru það bílarnir Audi A8, BMW 6 Series Gran Tourismo, Lexus LS, Porsche Cayenne og Porsche Panamera. Ekki geta þeir Porsche menn verið óánægðir með það val, né heldur bílarisinn Volkswagen Group sem á 3 bíla af þessum 5, en bæði Audi og Porsche tilheyra samstæðunni.
Einnig var tilkynnt um þá 5 bíla sem komir eru í úrslit sem akstursbíll ársins (2018 World Performance Car of the Year) og eru það bílarnir Alfa Romeo Giulia Quadrifoglio, Audi RS3, BMW M5, Honda Civic Type R og Lexus LC 500. Þá var líka tilkynnt um þá 5 bíla sem komnir eru í úrslit í vali á þéttbýlisbíl ársins (2018 World Urban Car of the Year) og eru það bílarnir Ford Fiesta, Hyundai Kona, Nissan Micra, Suzuki Swift og Volkswagen Polo.
Að lokum var tilkynnt um þá 4 bíla sem komnir eru í úrslit í vali á græna bíl ársins (2018 World Green Car of the Year) og eru það bílarnir BMW 530e iPerformance, Chevrolet Cruze Diesel, Chrysler Pacafica Plug-In-Hybrod og Nissan Leaf. Með þessari tilnefningu Nissan Leaf er hann þetta árið með tvær tilnefningar í sitthvorum flokknum, líkt og Alfa Romeo Giulia.







