Um er að ræða snjóhvíta Jökla parka með silfurrefsfeld á hetttunni sem hefur heldur betur slegið í gegn hjá tónlistarfólki og í götutískunni. Höfum við meðal annars séð Herra Hnetusmjör og Birni koma fram og klæðast úlpunni góðu - nú síðast á Hlustendaverðlaununum.
Við höfum áður talað um að hvíti liturinn er að taka yfir - en rapparar eru þekktir fyrir að vilja klæðast fatnaði sem vekur athygli. Það gerir svo sannarlega þessi snjóhvíta yfirhöfn.
