Það liggur ekki á svörum þegar Karítas Diðriksdóttir, markaðsstjóri iglo+indi, er spurð út í hvaða fræga fólk hafi sýnt barnafötunum frá iglo+indi áhuga.


Blue Ivy, dóttir Beyoncé og Jay Z, er eitt þeirra barna og stílisti hennar, Manuel A. Mendez, er hrifinn af iglo+indi.
Hann birti mynd úr nýjustu línu iglo+indi á samfélagsmiðlum um daginn.
„Myndin sem Manuel deildi er úr vor/sumar herferðinni okkar.
Atli vinur okkar er í peysu með ísaumaðri antilópu, stuttbuxum með antilópuprenti og sokkum með eldingu.
Myndin er tekin af Sögu Sig við Kleifarvatn,“ útskýrir Karítas sem er í reglulegu sambandi við stílista fræga fólksins sem biðja gjarnan um um sýnishorn úr línu iglo+indi fyrir til dæmis myndatökur.

Ísland vekur áhuga
Karítas segir tenginguna við Ísland koma sér vel fyrir merkið. „Fólk er almennt mjög áhugasamt um að við séum frá Íslandi. Ísland er oft innblásturinn fyrir litina og prentin og lundaprentið okkar er búið að vera vinsælasta prentið í mörg ár.“Karítas segir teymi iglo+indi hafa byrjað að leggja áherslu á markaðssetningu erlendis fyrir um fjórum árum.
„Vörumerkið var endurnefnt iglo+indi og við byrjuðum að taka virkan þátt í sýningum erlendis,“ segir Karítas en merkið hét áður Ígló og Indí.
Í dag fæst merkið víða erlendis.
„Söluaðilar okkar í Evrópu, Ameríku og Asíu ferðast einnig á sýningar á sínum heimamörkuðum.“