Messi braut loks ísinn gegn Chelsea │ Sjáðu mörkin Anton Ingi Leifsson skrifar 20. febrúar 2018 22:45 Chelsea og Barcelona gerðu 1-1 jafntefli í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu, en Lionel Messi tókst loksins að skora gegn Chelsea. Áður hafði hann spilað átta leiki gegn liðinu án þess að skora mark. Staðan var markalaus i hálfleik, en Willian skaut tvisvar í tréverkið. Chelsea var minna með boltann, en átti ívið hættulegri færi á meðan Messi og Luis Suarez komust lítið í boltann. Í síðari hálfleik færðist meira fjör í leikinn, en á 62. mínútu skoraði Willian loksins. Allt er þegar þrennt er. Chelsea komið í kjörstöðu og með pálmann í höndunum. Liðið gerði sig hins vegar sekt um skelfileg mistök þegar liðið missti boltann í vörninni, Andres Iniesta vann boltann og lagði hann á Lionel Messi sem skoraði framhjá Thibaut Courtois, markverði Chelsea. Þetta var níundi leikur Messi gegn Chelsea og hans fyrsta mark, hans versta tölfræði gegn nokkru liði. Lokatölur urðu 1-1 og Barcelona með mikilvægt útivallarmark í farteskinu. Meistaradeild Evrópu
Leik lokið: Tindastóll - Stjarnan 110-97 | Stólarnir svöruðu og leiða nú úrslitaeinvígið Körfubolti
Þeir bestu (40.-31. sæti): Gullfundur í Góða hirðinum, galdurinn í Garðabænum og költhetjan Íslenski boltinn
Þeir bestu (50.-41. sæti): Skagamiðverðir, markahrókar úr Eyjum og Laugardalnum og öldungurinn aftast
Leik lokið: Tindastóll - Stjarnan 110-97 | Stólarnir svöruðu og leiða nú úrslitaeinvígið Körfubolti
Þeir bestu (40.-31. sæti): Gullfundur í Góða hirðinum, galdurinn í Garðabænum og költhetjan Íslenski boltinn