Framleiðslufyrirtæki Netflix-seríunnar The Crown hefur beðið aðalleikarar fyrstu tveggja þáttaraðanna afsökunar á að hafa gefið upp að karlinn í aðalhlutverki hefði fengið meira borgað en konan í aðalhlutverki.
Framleiðslufyrirtækið heitir Left Bank Pictures en það sendi frá sér yfirlýsingu þar sem þau Claire Foy og Matt Smith eru beðin afsökunar á því að hafa verið skilin eftir í fjölmiðlastormi vegna ummæla framleiðendanna.
The Crown fjallar um ævi Elísabetar Englandsdrottningar en Claire Foy lék hana í fyrstu tveimur þáttaröðunum. Matt Smith lék Filipus prins eiginmann Englandsdrottningar í þáttunum.
Framleiðendur þáttanna sóttu málþing í Jerúsalem í síðustu viku þar sem Suzanne Mackie upplýsti að Foy hefði fengið minna borgað en Smith. Var ástæðan sögð sú að Smith var mun þekktari leikari vegna hlutverks hans í þáttunum Dr Who.
Viðbrögðin létu ekki á sér standa og var skorað á Smith að gefa launamismuninn til Time´s Up hreyfingarinnar.
Í yfirlýsingunni sem barst fjölmiðlum ytra fyrr í dag segir að framleiðslufyrirtækið beri alla ábyrgð á þessum launamun og er tekið fram að leikararnir hafi ekki vitað af honum.
Fyrirtækið segist sýna þessari baráttu fyrir jöfnum launum kynjanna fullan stuðning og muni gera allt sem hægt er til að tryggja að svo verði í framtíðinni.
Biðja leikara The Crown afsökunar

Tengdar fréttir

Claire Foy fékk minna borgað en mótleikari hennar í The Crown
Framleiðendurnir segja frægð Matt Smith hafa átt þátt í því.