Barr tísti um að Valerie Jarrett, sem er svört, væri barn Bræðralags múslima, egypsk flokks íslamista, og kvikmyndanna um Apaplánetuna. Hún hefur síðan eytt tístinu og beðist afsökunar á lélegum brandara.
Iðrun Barr var hins vegar ekki nóg því ABC hætti snarlega við „Roseanne“, þættina sem Barr leikur aðalhlutverkið í. Í yfirlýsingu stöðvarinnar sagði að tíst Barr hefði verið „andstyggilegt, viðbjóðslegt“ og að það samræmdist ekki gildum stöðvarinnar.
Áður hafði Wanda Sykes, einn framleiðenda þáttanna, lýst því yfir að hún myndi ekki starfa lengur við þættina, að því er segir í frétt breska ríkisútvarpsins BBC. Emma Kenney, leikkona í þáttunum, segir hafa hringt í ABC til að tilkynna að hún væri hætt en henni hefði þá verið sagt að stöðin hefði þegar ákveðið að aflýsa þáttaröðinni.
Actress Emma Kenney:
— NBC News (@NBCNews) May 29, 2018
"I am hurt, embarrassed, and disappointed. The racist and distasteful comments from Roseanne are inexcusable ... As I called my manager to quit working on Roseanne, I found out the show got cancelled." https://t.co/gesPw8AuZf pic.twitter.com/16QaywZ6iP
Sagði George Soros hafa unnið með nasistum
Tíst Barr um Jarrett í morgun var svar við þræði með samsæriskenningum um að Jarrett hefði tekið þátt í að hylma yfir njósnar leyniþjónustunnar CIA. Barr er stuðningskona Donalds Trump Bandaríkjaforseta og persóna hennar í þáttunum sömuleiðis.Endurkoma þáttanna í sjónvarp hafði verið sumum stuðningsmönnum Trump fagnaðarefni af þessum sökum. Vel hafði verið tekið á móti þáttunum og horfðu átján milljónir manna á fyrsta þáttinn 27. mars.
Í gærkvöldi hafði Barr einnig reynt að tengja Chelsea Clinton, dóttur Hillary og Bill, við George Soros, ungversk-bandarískan auðjöfur, sem hefur undanfarin ár orðið að grýlu í hugum öfgahægrimanna. Sakaði Barr Soros meðal annars um að hafa unnið með nasistum þrátt fyrir að hann sé sjálfur gyðingur og hafi verið 9-14 ára gamall þegar síðari heimsstyrjöldin stóð yfir.
Donald Trump yngri, sonur Bandaríkjaforseta, áframtísti samsæriskenningum Barr um Soros. Forsetasonurinn hefur ítrekað tíst samsæriskenningum í gegnum tíðina.
Þetta var einnig fjarri því fyrsta skiptið sem Barr tísti framandlegum samsæriskenningum og níði. Sama dag og þættir hennar hófu göngu sína aftur tísti hún um að ungur maður sem lifði af mannskæða skotárás í framhaldsskóla í Parkland á Flórída hefði heilsað að nasistasið. Þá hefur hún dreift samsæriskenningu um að Hillary Clinton og aðrir háttsettir demókratar stæðu fyrir barnaníðshring í kjallara pítsustaðar í Washington-borg, að sögn Buzzfeed.