Til dæmis er stöðugleikakerfið í nýjum Touareg það sama og finna má í Bentley Bentayga og afturhjólastýringin er sú sama og í Lamborghini Urus. Engu að síður er Volkswagen Touareg meira en helmingi ódýrari bíll en þessir tveir og nokkuð undir verði Cayenne og Q7.

Það fæst jú alltaf meira fyrir meiri pening, en spurningin er þá helst, hvar nóg er nóg? Kannski er einmitt nógu náð með þessum nýja Touareg, að minnsta kosti saknaði greinarritari lítils við akstur þessa ríkulega bíls.

Öflugri dísilvél en í Q7
Í fyrstu hefur Hekla eingöngu fengið nýjan Touareg með 3,0 lítra dísilvél sem er skráð fyrir 285 hestöflum, en einnig er í boði dísilvél sem afkastar 230 hestöflum og má með þeirri útfærslu spara sér 860 þúsund. Grunnverð Touareg með aflminni dísilvélinni er 8.590.000 en með aflmeiri vélinni 9.450.000 kr. Hjá Volkswagen verður síðan Touareg líka í boði með 6 strokka bensínvél, 8 strokka dísilvél og sem Plug-In-Hybrid bíll.Það er í raun athyglisvert að aflmeiri dísilvélin í þessum nýja Touareg er 13 hestöflum aflmeiri en í tiltölulega nýjum Audi Q7, en í grunninn er þetta sama vélin, með 3,0 lítra sprengirými. Fyrir þessum aflmun finnst og fyrir vikið er bíllinn ferlegur orkubolti sem þýtur af stað þó hægri fætinum sé ekki troðið í gólfið. Touareg er ári snöggur í hundraðið, eða 6,1 sekúndu og það er reyndar alveg sama á hvaða hraða maður er á þessum bíl, þyngra stig með hægri gefur honum alltaf mikla hraðaaukningu. Fyrir vikið er ferlega gaman að gefa þessum bíl inn.
Allt þetta rífandi afl kemur þó ekki niður á eyðslunni því í reynsluakstrinum var hann t.d. mældur með 7,5 lítra á um 15 km spotta milli Mosfellsbæjar og miðbæjar Reykjavíkur. Uppgefin eyðsla í blönduðum akstri er 6,6 lítrar og líklega mun bíllinn höggva nálægt þeirri tölu í raunheimum. Það er ekki slæmt fyrir bíl sem er ríflega tvö tonn að þyngd.

Magnað mælaborð
Líklega mun mælaborðið í þessum nýja Touareg gera margan orðlausan, en fá má bílinn svo til takkalausan og með tveimur samliggjandi 12 og 15 tommu skjáum þaðan sem öllum búnaði bílsins er stjórnað. Afar fáir bílar eru í boði með slíka tækni og útlit, en fyrir vikið er eins og stigið sé upp í háþróað geimfar fremur en bíl. Víst er að fleiri og fleiri bílar munu verða svona búnir á næstu árum, tæknin er til staðar og sannarlega er útlitið áhrifaríkt og stílhreint. Þetta framúrstefnulega mælaborð og stjórnun þess kalla þeir hjá Volkswagen „Innovision Cockpit“. Það er eiginlega full ástæða fyrir bílaáhugamenn að gera sér sérstaka ferð upp í Heklu og kíkja á þetta nýja mælaborðsútlit í Touareg.

Urmull akstursstillinga
Touareg, eins og flestir flottir og dýrari jeppar, er með akstursstillingum og ekki skortir á fjölda þeirra, en þar má finna Eco, Normal, Comfort, Individual, Snow, Sand og Off-road.Í langflestum tilfellum er best að stilla bílinn á Normal eða Comfort til að njóta þægilegasta aksturs bílsins. Þá koma gríðargóðir aksturseiginleikar hans best í ljós.
Hinar stillingarnar henta við aukna ófærð en voru ekki reyndar í reynsluakstrinum.
Þær gætu komið sér vel þegar vetrar, eða á hálendinu.
Hægt er að fá bílinn með frábærri loftpúðafjöðrun og þannig búinn er hann frábært aksturstæki.
Hann svínliggur í beygjum og er hreinn unaður að aka.
