Yfir 34 þúsund manns séð Lof mér að falla Stefán Árni Pálsson skrifar 24. september 2018 16:30 Kvikmyndin var frumsýnd í byrjun september.
Eftir sautján daga í sýningu er Lof mér að falla orðin fjórða vinsælasta mynd ársins, situr sem fastast á toppi aðsóknarlistans sína þriðju helgi í röð og er orðin tekjuhæsta íslenska mynd ársins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðstandendum kvikmyndarinnar Lof mér að falla en þar segir ap eftir síðustu helgi hafa 34 þúsund manns séð Lof mér að falla. Framundan hjá leikstjóra, aðalleikurum og framleiðendum er að fylgja myndinni eftir á kvikmyndahátíðina Busan í S-Kóreu þar sem Lof mér að falla mun taka þátt í World Cinema hluta hátíðarinnar. Busan er stærsta kvikmyndahátíð Asíu og fer fram 4.-13. október og er þetta er Asíu frumsýning myndarinnar. Myndin segir frá hinni 15 ára gömlu Magneu en líf hennar umturnast þegar hún kynnist hinni átján ára gömlu Stellu. Magnea laðast að hispurslausu lífi Stellu og þróar Magnea sterkar tilfinningar til hennar sem Stella notfærir sér til eigin hagsbóta. Stella leiðir Magneu inn í heim fíkniefna sem hefur alvarlegar afleiðingar fyrir þær báðar. 12 árum síðar liggja leiðir þeirra óvænt saman og verður uppgjör á milli þeirra óumflýjanlegt. Baldvin Z leikstýrir kvikmyndinni en árið 2015 sáu 48.000 manns kvikmyndina Vonarstræti sem Baldvin leikstýrði einnig.
Bíó og sjónvarp Mest lesið „Ekkert gengið að casha út á pabba“ Menning Þjóðhátíð um raunveruleikaþátt Brynjars: „Það er ekkert í boði“ Lífið Vala Kristín og Hilmir Snær búin að eiga Lífið Hélt við konu besta vinar síns Lífið Laufey Lín og Barbra Streisand leiða saman hesta sína Lífið Fréttatía vikunnar: Trump, Parkinson og fótbolti Lífið Stuð og stemning á „árshátíð íslenskra þungarokkara“ í Stykkishólmi Lífið Selur íbúð með náttúruparadís í bakgarðinum Lífið Vann gullverðlaun fyrir sykurblómaskreytingu Lífið Einn heppinn vinnur frítt flug í heilt ár með PLAY Lífið samstarf Fleiri fréttir Nýju Harry, Ron og Hermione fundin Staupasteinsstjarna er látin Gurra og Georg hafa eignast litla systur Joe Don Baker látinn Frumsýning: Ólafur Darri og Hera Hilmar í glænýrri seríu Óskarsverðlaunaleikstjórinn Robert Benton látinn Tom Cruise stökk úr þyrlu með myndavél Íslendinga Trump tollar kvikmyndir: „Eins og reiður, fullur pabbi sem ætlar að hætta við jólin“ Sjá meira