Hann var einn af þeim fyrstu til að bæta við karlmennskuhugtakið sýnilegri blíðu og viðkvæmni sem hefur eflaust orðið einhverjum sem voru læstir inni í ímyndinni lykill til að horfast í augu við hið blíða í sjálfum sér. Og nú sendir hann frá sér bók um kynferðisofbeldi sem hann varð fyrir í æsku og áhrifin sem það hafði á líf hans. Bók þar sem einmitt er fjallað um lása en líka lykla. Hann hleypir sjálfum sér út úr þögninni þar sem eina lausnin var að „grafa dýpra“ eins og segir í ljóðinu Boðflenna á bls. 50.
Orðið Rof vísar til þess sem gerðist: daginn eftir var kominn/brestur þvert yfir/spegilmyndina (bls. 7) og mörg ljóðanna fjalla um hvernig ljóðmælandi hefur falið sig síðan, átt erfitt með nánd, borið skugga gerandans og þess sem gerðist með sér hvert sem hann fór, ekki síst inn í sambönd við annað fólk.

á yfirborði tunglsins
er fótspor
eins er fótspor
í kjarna mín sjálfs
Það er eins og það að viðurkenna atvikið fyrir sjálfum sér opni augu ljóðmælanda fyrir fleiri atvikum og fleiri þolendum, þannig er ljóðið Framheilaskaði á bls. 34 ekki endilega um ljóðmælanda heldur um sögu annarra og fleiri, og það sama má segja um ljóðin Hófaför við altarið (bls. 44) og Í felulitum (bls. 41).
Hann fjallar einnig um að þolandinn getur verið Hver sem er (bls. 24) og í raun er eins og þolendurnir verði skyndilega sýnilegir í kringum hann, ekki ósvipað því sem gerðist þegar #metoo-byltingin fyrir ári gerði heiminum skyndilega ljóst að nánast allar konur og margir karlar áttu sér sárar og stundum mjög bældar minningar um kynferðislegt eða kynbundið ofbeldi sem loksins fengu lit og orð. En bókin er ekki bara myrkar minningar og þrúgandi heimsmynd, þar eru líka lyklar, eins og áður sagði, von um að hægt sé að komast út.
Kveðjustund
Biðstofan er full
Röðin er löng
Fullorðnir menn
að kveðja skemmda
drenginn inni í sér
(bls. 47)
Í seinni hluta bókarinnar er vonin að glæðast, og tengir í upphafsorð bókarinnar: Það er aldrei of seint/að byrja að elska sjálfan sig.
Niðurstaða: Sársaukafull, falleg og mikilvæg ljóðabók, einlægt innlegg í eitt brýnasta málefni samtímans