Í tilkynningu Icelandair Group til Kauphallar Íslands kemur fram að það hafi verið „sameiginleg niðurstaða beggja aðila“ að falla frá kaupsamningnum. Kaup Icelandair Group á WOW air voru háð þremur skilyrðum samkvæmt kaupsamningi. Í fyrsta lagi áreiðanleikakönnun, í öðru lagi samþykki Samkeppniseftirlitsins og í þriðja lagi samþykki hluthafafundar Icelandair Group. Það var niðurstaða stjórnar Icelandair Group í gærkvöldi að falla frá kaupunum. Deloitte vann áreiðanleikakönnun vegna samrunans og lágu niðurstöður hennar fyrir í gær.
„Þegar við lögðum upp í verkefnið og skrifuðum undir kaupsamninginn þá lá fyrir að tímalínan var mjög krefjandi. Ýmsir fyrirvarar sem þurfti að ganga frá. Það náðist ekki að klára þá í tíma og stjórnin ákvað að eyða ekki meiri tíma í verkefnið,“ segir Bogi Nils Bogason starfandi forstjóri Icelandair Group. Hann segir að ákvörðunin hafi verið tekin í gærkvöldi.
Kom WOW air vel út úr áreiðanleikakönnun Deloitte? „Það var í raun þannig að áhættan við kaupin var meiri heldur en við gerðum ráð fyrir og það spilar inn í þessa ákvörðun.“
Viðtal við Boga Nils þar sem hann ræðir ákvörðun um að falla frá samruna.
Skúli Mogensen, stofnandi og forstjóri WOW air, fundaði með starfsfólki WOW air á skrifstofum félagsins á Höfðatorgi klukkan tíu í morgun. Á fundinum uppplýsti Skúli að fjársterkur aðili væru með kaup á félaginu til skoðunar. Í tölvupósti sem Skúli sendi starfsfólki félagsins fyrir fundinn segir að stefnt sé að því að WOW Air verði áfram sjálfstætt flugfélag. Segist hann geta reiknað með að geta fært starfsfólki gleðifréttir hvað það varðar í náinni framtíð.
Gengi hlutabréfa í Icelandair Group lækkaði mikið í Kauphöllinni eftir að fréttir bárust af því að hætt hefði verið við sameiningu félagsins og WOW Air. Skömmu fyrir kl. 12 á hafði gengið lækkað um 12,3 prósent í tæplega 250 milljóna króna viðskiptum.
WOW air er með um þriðjung í seldum flugsætum til landsins. Mörg fyrirtæki í íslenskri ferðaþjónustu eiga því mikið undir því að félagið í sé í stöndugum rekstri. Stjórnendur WOW air vinna nú að því að tryggja langtímafjármögnun félagsins. Svanhvít Friðriksdóttir upplýsingafulltrúi WOW air sagði í morgun að rekstur félagsins væri tryggður en fjármálastjóri WOW air sendi tölvupóst til að róa starfsmenn í gær þar sem hann sagði að laun yrðu greidd út á réttum tíma um mánaðamótin.
Fyrr á þessu ári vann starfshópur stjórnvalda um kerfislega mikilvæg fyrirtæki sviðsmyndagreiningu þar sem kom fram að ef WOW air færi í þrot þá gæti það leitt til 10 prósent samdráttar á útflutningi, 3 prósentustiga aukningu á verðbólgu og að um 1.400 manns myndu missa vinnuna. Bogi Nils Bogason segir að Icelandair Group hafi ekki á neinum tímapunkti verið undir þrýstingi frá stjórnvöldum að klára samrunann við WOW air.