Christian Eriksen hélt lífi í vonum Tottenham um að komast í 16-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu með sigurmarki seint í leik Tottenham og Inter Milan.
Tottenham var í þriðja sæti B-riðils fyrir leiki kvöldsins og þurfti sigur gegn Milan til þess að eiga möguleika á að komast upp úr riðlinum. Sigurinn skilaði Tottenham upp fyrir Milan og í annað sæti riðilsins.
Í loka umferðinni mætir Tottenham hins vegar toppliði Barcelona sem er öruggt með fyrsta sæti riðilsins á meðan Inter mætir PSV. Lærisveinar Mauricio Pochettino þurfa því að öllum líkindum sigur á Spáni til þess að eiga möguleika á að fara áfram.
Eftir markalausan fyrri hálfleik kom eina mark leiksins á 80. mínútu. Moussa Sissoko vann boltann og kom honum á Dele Alli. Englendingurinn sendi í hlaupaleiðina hjá hinum danska Eriksen sem hamraði boltanum í þaknetið.
Gestirnir frá Ítalíu náðu ekki að jafna leikinn og vonir Tottenham lifa enn.
Í hinum leik riðilsins vann Barcelona 1-2 sigur á PSV í Hollandi.
Eriksen hélt Spurs á lífi
