Sjá einnig: Skúli fundaði með samgönguráðherra
Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar voru gestir þáttarins Sprengisands í morgun og voru m.a. spurð út í stöðu WOW Air.

„Þetta eru fyrirtæki á markaði“
Sigurður Ingi sagði aðspurður að ríkistjórnin hafi þegar farið yfir til hvaða ráða eigi að grípa gangi rekstur félagsins WOW ekki upp í núverandi mynd.„Við höfum séð baráttu WOW fyrir eigin lífi og við höfum fylgst mjög vel með því. Við höfum tryggt það að hið opinbera eftirlitskerfi sé í lagi, við höfum metið hvort ríkið hefði á einhverjum tímapunkti átt að stíga inn í. Við mátum að það væri ekki þannig.“
En er það núna?
„Nei, það er ekki þannig. Við höfum alltaf komist að þeirri niðurstöðu að þetta eru fyrirtæki á markaði, það sem ríkið þarf að gera er að skoða aðrar leiðir. Við höfum alltaf vonast eftir því besta en reynt að undirbúa okkur undir hið versta,“ sagði Sigurður Ingi, en bætti jafnframt við að hann væri vongóður eftir góðan fund með Skúla Mogensen, forstjóra WOW Air, á föstudag.

Suðurnesin verst stödd
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar segir mikilvægt að ríkistjórnin sé með viðbragðsáætlun vegna stöðu sem gæti komið upp.„Ég hins vegar vona að menn séu tilbúnir, því það er ákveðinn landshluti sem yrði einna verst fyrir þessu, og það eru Suðurnesin,“ sagði Þorgerður og vísaði þar til þess að á þriðja hundrað manns var sagt upp hjá Airport Associates og WOW Air á Keflavíkurflugvelli fyrir helgi.
„Við þurfum að vera líka með viðbragðsáætlanir fyrir fólkið sem verður hugsanlega fyrir breytingum á þessum markaði.“
Riddarinn á hvíta hestinum
Greint var frá því fyrir helgi að fjárfestingafélagið Indigo Partners og WOW Air hafi gert með sér bráðabirgðasamkomulag um fjárfestingu Indigo í WOW. Félaginu er lýst sem „riddara á hvítum hesti“ sem komi flugfélaginu WOW til bjargar í umfjöllun á vefsíðu bandaríska viðskiptamiðilsins Forbes.
Hlutabréf í Icelandair hafa hríðfallið í kjölfar þess að horfið var frá kaupunum. Þá var greint frá því á föstudag að WOW tapaði 4,1 milljarði króna á fyrstu níu mánuðum ársins 2018. Tapið er rakið til neikvæðrar umræðu um stöðu félagsins og hækkunar á eldsneytisverði.
Umræður Sigurðar Inga og Þorgerðar Katrínar um WOW Air hefjast á mínútu 14:20 í spilaranum hér að neðan.