Fyrir leikinn var ljóst að CSKA gæti ekki tryggt sér sæti í 16-liða úrslitunum Meistardeildarinnar en með hagstæðum úrslitum gat liðið komið sér í 32-liða úrslit Evrópudeildarinnar.
Gestirnir frá Moskvu voru síst lakari aðilinn í fyrri hálfleik og eftir undirbúning Arnórs var það Fedor Chalov sem kom gestunum yfir á 37. mínútu.
Sex mínútum síðar var staðan orðinn 2-0. Þá skoraði Georgi Shchennikov og gestirnir frá Moskvu voru tveimur mörkum yfir er leikmenn gengu til búningsherbergja.
Sýningu Moskvu-manna var ekki lokið því það var Skagamaðurinn Arnór sem rak síðasta naglann í kistu Real í kvöld er hann skoraði með laglegu skoti úr miðjum teignum eftir sendingu Nikola Vlasic.
Hörður Björgvin Magnússon stóð vaktina allan tímann í vörn CSKA og gerði það vel. Arnóri var skipt af velli er fimm sekúndur voru eftir af leiknum en mögnuð frammistaða hans á einu stærsta sviði fótboltans.
Lokatölur 3-0 sigur CSKA sem hefði farið í Evrópudeildina ef Roma myndi ná stigi eða stigum af Viktoria Plzen er liðin mættust í Tékklandi.
Jan Kovarik kom Plzen yfir á 62. mínútu en sex mínútum síðar jafnaði Tyrkinn Cengiz Under. Aftur komust Tékkarnir yfir á 72. mínútu með marki Tomas Chory og lokatölur 2-1 sigur Plzen.
Real endar því á toppi riðilsins með tólf stig, Roma í öðru með níu, Plzen í þriðja með sjö vegna þess að þeir höfðu betur í innbyrðisviðureignum gegn CSKA sem endar í fjórða sætinu.
Afar athyglisvert að CSKA endi með sjö stig í riðlinum en sex af þessum sjö stigum liðsins komu gegn Evrópumeisturunum í Real Madrid. Mark Arnórs frá því í kvöld má sjá hér að neðan.