Orkugjafinn er vetni sem gengur í samband við súrefni og úr verður rafmagn sem knýr rafmagnsmótorana. Það sem kemur út úr bílnum er vatn og súrefni og það í sinni hreinustu mynd. Reyndar er súrefnið sem bíllinn tekur inn á sig oft á tíðum mengaðra en það sem bíllinn lætur frá sér. Bíllinn er því í leiðinni lofthreinsari.

Hann er það góður í akstri að undrum sætir og hann er líka snarpur og kom það greinarskrifara skemmtilega á óvart, þó svo hann sé ekki alveg jafn snarpur og öflugustu rafmagnsbílar.

Það gleður svo alltaf ökumann að aka um á hljóðlausum bíl, en það heyrist hreinlega ekkert í rafmótorunum.

Geggjað flottur að innan
Nexo er algerlega nýr bíll úr smiðju Hyundai og á fátt sameiginlegt með öðrum bílgerðum Hyundai og er auk þess harla ólíkur þeim flestum í útliti. Hann er býsna laglegur að utan og hreint hrikalega flottur að innan. Þar er hann miklu líkari lúxusbíl og efnisval og hönnun eins og gerist best.Sætin í bílnum eru dúndrandi flott, þægileg og rafstillanleg á alla vegu. Bíllinn er hátæknivæddur og hreinlega með öllu því nýjasta sem flestir bílkaupendur gera orðið kröfu um. Aftursætin eru engir eftirbátar framsætanna og þar er svo gott fóta- og höfuðrými að vel fer um stærri gerð fólks.

Miðjustokkurinn milli framsætanna er með allra breiðasta móti, mjög flatur og með fullt af tökkum. Þar er auðvelt að teygja sig í fullt af stjórntækjum sem flókið reynist oft að skrolla sig í gegnum á skjáum og ber því að fagna þessu fyrirkomulagi. Stokkurinn er þó svo flatur að oft getur reynst erfitt að greina hvað hver og einn takki gerir, en það batnar þó í myrkri þegar merkingar þeirra lýsast upp.

Framtíðarlausn sem kostar
Það eru ekki margir bílaframleiðendur sem lagt hafa mikla áherslu á vetnisbíla hingað til, en þó helst Hyundai og Toyota með sinn ágæta Mirai bíl. Báðum þessum framleiðendum virðist mikil alvara miðað við fjármagnið sem þeir hafa lagt í þróun þeirra, sem og þeirra bíla sem litið hafa dagsins ljós.Það er hrikalega vandað til þessa Nexo bíls, allt virkar frábærlega og bíllinn fyllir mann trú á þessum orkugjafa sem einnar af þeim framtíðarlausnum sem heimsbyggðin leitar að til að leysa af hefðbundna mengandi bíla með brunavélum. En eins og ávallt er þróunarkostnaður við nýja tækni mikill og það vill endurspeglast í verði fyrstu afurðanna.
Nexo er nefnilega ekki ódýr bíll og fullt verð hans er 9.658.000 kr. en endanlegt verð með stuðningi í gegnum samstarf Nýorku er um 7.800.000 kr. Það er ekki ósvipað verð og gjarnan er á stærri jepplingum eins og Hyundai Santa Fe eða Kia Sorrento.

Mikið drægi en fáar stöðvar
Drægi vetnisbíla er einn aðalkostur þeirra og það á sannarlega við í tilfelli Nexo, en það er ríflega 600 km. Eldsneytistankur bílsins er 156,6 lítrar, en þar sem vetni er létt en orkuríkt efni vegur innihald hans, þó fullur sé, aðeins 6,33 kg. Þar kemur annar kostur vetnisbíla í ljós, en þessi léttleiki eykur aksturshæfni bílsins og það kemur greinilega í ljós við aksturinn. Að þessu leyti eru vetnisbílar líka með vinninginn yfir rafmagnsbíla sem þurfa að drattast með rafhlöður í mörg hundruð kílóa vís.Líklega er þó helsti ókosturinn enn við vetnisbíla hve óvíða er hægt að fylla á þá, en þó fer stöðvum fjölgandi og ein þeirra var nýlega opnuð í Reykjanesbæ og önnur við Vesturlandsveg í Reykjavík og fleiri stöðvar eru á leiðinni. Vetnið er framleitt í jarðvarmavirkjuninni á Hellisheiði og aðeins tekur 5 mínútur að fylla bílinn, en þrýstingurinn á nýju dælustöðvunum tryggir að tankurinn fyllist. Það vildi bregða við á fyrri vetnisstöðvunum að það næðist ekki nema að hálfu leyti.

HYUNDAI NEXO VETNISBÍLL
Kostir:Útlit
Aksturseiginleikar
Búnaður
Umhverfisvænn
Gallar:
Fáar hleðslustöðvar
Verð
Um bílinn:
Rafmótorar knúnir af vetni
163 hestöfl
Framhjóladrif
Drægi: 600 km í bl. akstri
Mengun: 0 g/km CO2
Hröðun: 9,2 sek. í 100 km hraða
Hámarkshraði: 177 km/klst.
Verð frá: 7.800.000 m.kr.
Umboð: BL Kauptúni 1