Nýr nemendahópur við Landgræðsluskólann Heimsljós kynnir 28. mars 2019 15:45 Nemendahópurinn sem sestur er á skólabekk í Landgræðsluskólanum. UNU-LRT
Nýr hópur nema hefur hafið nám við Landgræðsluskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna. Skólinn er hluti af alþjóðlegri þróunarsamvinnu Íslands og hýstur af Landbúnaðarháskóla Íslands í samvinnu við Landgræðsluna. Í ár eru nemarnir alls 21, 10 karlar og 11 konur, og koma frá 10 löndum í Afríku og Asíu. Nemarnir eru allir starfandi sérfræðingar í sínum heimalöndum og hafa fengið leyfi frá störfum til að sækja sex mánaða nám Landgræðsluskólans um landhnignun og afleiðingar hennar, sjálfbæra landnýtingu og landgræðslu. Nemarnir koma frá Gana, Malaví, Úganda, Níger, Lesótó og Eþíópíu í Afríku og frá Mongólíu, Tadsíkistan, Kirgistan og Úsbekistan í Asíu. Í heimalöndum sínum starfa þau á sviði landnýtingar og landverndarmála, ýmist við rannsókna- og eftirlitsstofnanir, héraðsstjórnir, ráðuneyti eða háskóla, auk frjálsra félagasamtaka. Að loknu námi við Landgræðsluskólann fara þau aftur til starfa sinna, þar sem námið mun nýtast þeim í þeim áskorunum sem þau þurfa að takast á við í vinnu sinni. Skólar Háskóla Sameinuðu þjóðanna (HSÞ) hafa um áratugaskeið verið mikilvægur þáttur í þróunarsamvinnu Íslendinga, enda er innan þeirra hagnýtt sú sér- og tækniþekking sem til staðar er á Íslandi og henni miðlað til íbúa þróunarlandanna. Hlutverk Landgræðsluskólans er að vinna að vernd, endurheimt og sjálfbærri nýtingu vistkerfa á landi, sjálfbærri stjórnun skógarauðlinda, baráttu gegn eyðimerkurmyndun, stöðvun jarðvegseyðingar, endurheimt landgæða og mótspyrnu við hnignun líffræðilegrar fjölbreytni. Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Þróunarsamvinna Mest lesið Íslendingar handteknir á Spáni með mikið magn fíkniefna Innlent Lalli Johns er látinn Innlent Láta bandarískan gísl lausan Erlent Sker upp herör gegn kínverskum netrisum Innlent Íslenskur morðingi í Bandaríkjunum: „Gerðu það pabbi, ekki gleyma mér“ Innlent Afnám virðisaukaskatts geti skilað björgunarsveitum fúlgum fjár Innlent „Eiga sína síðustu daga í faðmi ástvina undir hamraslætti og múrborum“ Innlent Ein staða fornleifafræðings eftir á Þjóðminjasafninu Innlent Vilja leggja réttarríkið til hliðar Erlent Icelandair hættir rekstri stærstu flugvéla sinna Innlent