Kröfuhafar WOW air hafa samþykkt að breyta skuldabréfum sínum í hlutafé og þá eru formlegar viðræður hafnar við fjárfesta um mögulega aðkomu að rekstri félagsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá WOW air sem var að berast.
Í tilkynningu WOW air segir þetta sé mikilvægur áfangi í því að endurskipuleggja félagið og að tryggja framtíð félagsins til lengri tíma. Ekki kemur fram í tilkynningu félagsins hvaða fjárfesta um ræðir.
Greint var frá því að kröfuhafar flugfélagsins hafi fundað í gærkvöldi um áætlun um að breyta skuldum félagsins í 49 prósent hlutafjár í félaginu. Var jafnframt greint frá því að einhugur væri meðal kröfuhafa um áætlunina sem felst í því að bjóða 51 prósents hlut til kaup á 40 milljónir dala, sem samsvarar um fimm milljörðum íslenskra króna.
Greint hefur verið frá því að WOW air skuldi um 200 milljónir dollara og kröfuhafar séu meðal annars skuldabréfaeigendur, Arion banki og ISAVIA ohf., leigusalar, lífeyrissjóðir og aðrir viðskiptavinir. Samsvarar 200 milljónir dollara um 24 milljörðum króna. Er WOW er sagt skulda Isavia um tvo milljarða króna.
Fréttin hefur verið uppfærð.
Hefja formlegar viðræður við mögulega fjárfesta

Tengdar fréttir

Ögurstundin er runnin upp
Ráðgjafar WOW air leita allra leiða til að fá fjármagn að borðinu á mettíma. Kunnugir óttast að kraftaverk þurfi til. Kyrrsetning á vélum WOW rötuðu í erlenda fjölmiðla í gær og það hefur gríðarleg áhrif.

Gagnrýnir Samgöngustofu og Isavia harðlega: Telur of dökka mynd dregna upp ef WOW fer í þrot
Björgólfur Jóhannsson, fyrrverandi forstjóri Icelandair Group, segir að Samgöngustofu hafa að sínu mati brugðist eftirlitshlutverki sínu gagnvart WOW air. Þetta sagði Björgólfur í Bítinu á Bylgjunni í morgun þar sem hann sagði að of svört mynd væri dregin upp af áhrifunum sem verða ef WOW air hættir rekstri.

Árlegt eftirlit með fjárhag flugfélaga getur orðið viðvarandi
Samskiptastjóri Samgöngustofu segir að eftirlit með flugfélögum geti tekið breytingum eftir aðstæðum. Árlegt eftirlit með fjárhag flugfélaga til að tryggja flugöryggi geti orðið viðvarandi ef þörf krefur.