Helgi í hóp stærstu hluthafa Kviku Kristinn Ingi Jónsson skrifar 10. apríl 2019 07:15 Helgi Magnússon fjárfestir.
Helgi Magnússon, fjárfestir og fyrrverandi formaður Samtaka iðnaðarins og Lífeyrissjóðs verslunarmanna, er kominn í hóp stærstu hluthafa Kviku banka með ríflega 1,1 prósents hlut. Miðað við núverandi gengi hlutabréfa í fjárfestingarbankanum er hluturinn metinn á um 215 milljónir króna. Samkvæmt nýjum lista yfir stærstu hluthafa Kviku, dagsettum 5. apríl, er félagið Hofgarðar, sem er að fullu í eigu Helga, tuttugasti stærsti hluthafi bankans með 1,13 prósenta hlut. Til samanburðar átti félagið 0,7 prósenta hlut í Kviku í lok síðasta árs en hlutabréfaverð bankans hefur hækkað um ríflega fimmtung frá áramótum. Kvika banki var sem kunnugt er skráður á aðalmarkað Kauphallarinnar í lok síðasta mánaðar eftir eitt ár á First North markaðinum. Gengi hlutabréfa í bankanum hefur hækkað um meira en 25 prósent á síðustu tólf mánuðum og þar af um 22 prósent það sem af er þessu ári. Er markaðsvirði bankans um 19 milljarðar króna. Helgi gegnir stjórnarformennsku í Bláa lóninu, þar sem hann er á meðal stærstu hluthafa með um 6,2 prósenta hlut, sem og í Húsasmiðjunni. Eins og fram hefur komið hætti Helgi í stjórn Marels á aðalfundi félagsins í byrjun síðasta mánaðar en hann hafði setið í stjórninni frá árinu 2005. Þá lét hann jafnframt af stjórnarmennsku í N1 í kjölfar kaupa olíufélagsins á Festi síðasta haust en hann hóf stjórnarstörf hjá félaginu árið 2012. Helgi var formaður Samtaka iðnaðarins á árunum 2006 til 2012 og sat í stjórn Lífeyrissjóðs verslunarmanna árin 2007 til 2016, þar af sem formaður frá 2010 til 2013.
Birtist í Fréttablaðinu Íslenskir bankar Mest lesið Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Viðskipti innlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Fljúga til Færeyja árið um kring Viðskipti innlent Ekkert plan: Mun gervigreindin borga tekjuskatt? Atvinnulíf Fleiri fréttir „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Sjá meira