Íslenski boltinn

Fimleikafélagið: Kostuleg heimsókn Björns Daníels og Guðmanns á Pylsubarinn

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Strákarnir á Pylsubarnum hans Péturs Viðarssonar.
Strákarnir á Pylsubarnum hans Péturs Viðarssonar. MYND/OBBOSÍ
Í fjórða þætti annarrar seríu Fimleikafélagsins er þeim Birni Daníel Sverrissyni og Guðmanni Þórissyni, sem gengu aftur í raðir FH í vetur, fylgt eftir.

Í þættinum má m.a. sjá „penthouse“ íbúð Björns Daníels á Norðurbakkanum sem Guðmann er mjög áhugasamur um.

Þeir félagar fara á æfingu hjá FH, á pósthúsið og í myndatöku hjá Stöð 2 Sport.

Þá fóru þeir með bróður Guðmanns á Pylsubar Péturs Viðarssonar, samherja síns hjá FH. Sú heimsókn gekk ekki stórslysalaust fyrir sig.

Fjórða þátt annarrar seríu Fimleikafélagsins má sjá í heild sinni fyrir neðan.

Klippa: Fimleikafélagið - 4. þáttur
 

 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×