Íslenski boltinn

Félagið sem var að skipta yfir á gervigras tapar ekki á grasi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Víkingar fagna hér marki í sumar. Fyrirliðinn Sölvi Geir Ottesen hefur hér skorað.
Víkingar fagna hér marki í sumar. Fyrirliðinn Sölvi Geir Ottesen hefur hér skorað. Vísir/Bára
Víkingar tryggðu sér sæti í undanúrslitum Mjólkurbikars karla í fótbolta í gær með endurkomusigri út í Eyjum.

Víkingsliðið vann leikinn 3-2 eftir að hafa lent 2-0 undir í fyrri hálfleik. Liðið er fyrsta liðið sem kemst áfram í undanúrslitin en þrjú félög bætast síðan í hópinn í kvöld þegar átta liða úrslitin klárast.

Máni Pétursson, spekingur í Pepsi Max mörkunum og Mjólkurbikarmörkunum á Stöð 2 Sport, benti á það á Twitter að Víkingar hafa enn ekki tapað leik á náttúrulegu grasi í sumar.





Víkingar voru að skipta yfir í gervigras í vor á heimavelli sínum í Víkinni og léku af þeim sökum fyrstu heimaleiki sína á gervigrasinu í Laugardal. Nú er gervigrasið hins vegar klárt í Víkinni og Víkingar unnu mikilvægan 2-1 sigur á HK í fyrsta leiknum á nýja gervigrasinu.

Liðið hefur aftur á móti tapað þremur gervigrasleikjum í sumar en en ósigrað í fjórum leikjum sínum á grasi. Þar af hafa Víkingar farið tvisvar til Vestmannaeyja.

Tveir síðustu leikir Víkinga hafa verið á grasi og þá vann liðið baða og skoraði í þeim samtals sjö mörk. Fyrst vann liðið deildarleik á Greifavelli á Akureyri á sunnudaginn og svo bikarsigur á Hásteinsvelli í gærkvöldi.

Hér fyrir neðan má sjá leiki Víkingsleiki í sumar eftir undirlagi.

Grasleikir Víkinga í Pepsi Max deild og Mjólkurbikar í sumar:

1-1 jafntefli við ÍBV í deild (19. maí)

0-0 jafntefli við Grindavík í deild (1. júní)

4-3 sigur á KA í deild (23. júní)

3-2 sigur á ÍBV í bikar (26. júní)

Gervigrasleikir Víkinga í Pepsi Max deild og Mjólkurbikar í sumar:

3-3 jafntefli við Val í deild (26. apríl)

2-1 sigur á KÁ í bikar (1. maí)

1-1 jafntefli við FH í deild (5. maí)

1-3 tap fyrir Breiðabliki í deild (10. maí)

3-4 tap fyrir Stjörnunni í deild (15. maí)

0-1 tap fyrir KR í deild (25. maí)

Sigur í vítakeppni á KA í bikar (28. maí)

2-1 sigur á HK í deild (14. júní)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×