Kynlífsvandi para er oftast sagður stafa af samskiptaleysi þar sem fólk á erfitt með að tjá sig um kynlíf. Það eitt að geta talað um mismunandi þarfir og fantasíur getur því verið fyrsta skrefið í að losa um hömlur og komast nær því að verða fullnægður kynferðislega í sambandinu.
Fólk er eðlilega misopið og oft er hræðslan við að bera á borð langanir sínar það sem kemur í veg fyrir að makinn nái að veita þér það sem þú vilt.
En við getum ekki ætlast til að að makinn lesi hugsanir og viti hvað það er sem við viljum. Það má því segja að grunnurinn að góðu kynlífi sé að geta talað og treyst maka sínum fyrir þörfum okkar og fantasíum.
Til að forðast misskilning er ekki verið að spyrja um fullnægingar sem slíka, heldur allar þær hliðar sem koma að því að gera okkur fullnægð í sambandinu kynferðislega. Það geta til dæmis verið atriði eins og tíðni, tjáning og upplifunin á kynlífinu.
Athugið að spurning vikunnar er kynjaskipt og fólk beðið að svara eftir því hvort þú ert karl eða kona.
Ertu kynferðislega fullnægð/ur í sambandinu þínu?
Konur svara hér fyrir neðan: