Paris Saint-Germain vann stórleikinn við Real Madrid í fyrstu umferð Meistaradeildar Evrópu.
Angel di Maria skoraði tvisvar í upphafi leiksins gegn sínum gömlu félögum á Parc des Princes.
Fyrsta markið kom á 14. mínútu af stuttu færi framhjá Thibaut Courtois. Belginn gat engum vörnum komið við í seinna markinu sem di Maria skoraði af löngu færi með glæsilegu skoti.
Gareth Bale hélt hann hefði komið endurkomunni í gang þegar hann vippaði boltanum glæsilega yfir Keylor Navas en mark hans var dæmt af.
Karim Benzema kom boltanum einnig í netið fyrir Real Madrid en hans mark var líka dæmt af.
Thomas Meunier gulltryggði sigur PSG í uppbótatíma, lokatölur í París voru 3-0.
