Markalaust hjá Dortmund og Barcelona Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 17. september 2019 21:00 Marco Reus reyndi hvað hann gat en honum var ekki ætlað að skora í kvöld vísir/getty Dortmund og Barcelona gerðu markalaust jafntefli í Meistaradeild Evrópu í kvöld þökk sé vítamarkvörslu Marc-Andre ter Stegen. Heimamenn í Dortmund voru mun sterkari aðilinn í seinni hálfleik og átti Marco Reus tvö frábær færi sem ter Stegen varði vel auk þess að Reus lét landa sinn verja frá sér vítaspyrnu. Julian Brandt komst hvað næst því að skora, fyrir utan vítaspyrnuna, þegar hann setti boltann í þverslána seint í leiknum. Lionel Messi kom inn af varamannabekknum í sínum fyrsta leik fyrir Barcelona á tímabilinu en hann gat ekki galdrað fram sigurmark fyrir Börsunga. Meistaradeild Evrópu
Uppgjörið: Tindastóll - Stjarnan 110-97 | Stólarnir svöruðu og leiða nú úrslitaeinvígið Körfubolti
Þeir bestu (40.-31. sæti): Gullfundur í Góða hirðinum, galdurinn í Garðabænum og költhetjan Íslenski boltinn
Þeir bestu (50.-41. sæti): Skagamiðverðir, markahrókar úr Eyjum og Laugardalnum og öldungurinn aftast
Uppgjörið: Tindastóll - Stjarnan 110-97 | Stólarnir svöruðu og leiða nú úrslitaeinvígið Körfubolti
Þeir bestu (40.-31. sæti): Gullfundur í Góða hirðinum, galdurinn í Garðabænum og költhetjan Íslenski boltinn