Árið 2017 setti Koenigsegg Agera RS mettíma upp á 33,29 sekúndur. Þá var metið sett á lokaðri hraðbraut í Nevada í Bandaríkjunum.
Nýja metið er 31,49 sekúnda og var sett á dögunum af Sonny Persson, þróunarökumanni Koenigsegg. Metið var stt á Råda herflugvelli rétt utan við Lidköping í Svíþjóð.
Framkvæmdastjóri Koenigsegg, Christian von Koenigsegg sagði eftirfarandi um nýja metið:
„Þetta var gott tækifæri til að sýna raunverulega getu Regera bílsins og einstaks eins gírs skiptingar. Regera er aðeins með einn gír sem er notaður frá kyrrstöðu og upp í hámarkshraða bílsins sem er 403 km/klst og takmarkast við snúningshraða.“
Bíllinn sem notaður var við mettilraunina var fullbúinn bíll eins og hann kemur úr verksmiðjunni auk veltibúrs og fjögurra punkta beltis.
Það tók Persson 22,87 sekúndur að komast upp í 400 km/klst en aðeins 8,62 sekúndur að ná aftur kyrrstöðu. Samtals ferðaðist bíllinn 2048,46 metra í tilrauninni.