„Ef það á að fara með Rúnar eitthvert þá á að keyra hann niður í Laugardal“ Anton Ingi Leifsson skrifar 3. október 2019 15:00 Rúnar Kristinsson fagnar í sumar. vísir/getty
KR er Íslandsmeistari í Pepsi Max-deild karla en þeir enduðu fjórtán stigum á undan Breiðablik sem endaði í öðru sæti deildarinnar. Í uppgjörsþætti Pepsi Max-markanna á laugardagskvöldið var farið yfir tímabilið hjá KR sem vann sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil síðan 2013. „Rúnar er á sínu öðru ári en það tók hann fyrsta árið að finna sitt lið. Manni fannst augljóst strax í vetur að það var rosaleg stemning og liðsheild og þeir komu á mesta fluginu inn í mótið,“ sagði Atli Viðar Björnsson. Rúnar Kristinsson hefur verið orðaður við brottför frá KR en Atli Viðar segir að það væri best fyrir KR ef hann yrði áfram hjá félaginu um ókomin ár. „Það væri örugglega það besta sem myndi koma fyrir KR að hann myndi skjóta rótum og vera þar. Hann var í viðtali í vikunni þar sem hann sagði að það þyrfti að vera verulega spennandi til að hann myndi rífa sig upp.“ Máni Pétursson segir að samstaðan í KR-liðinu hafi skilað miklu í sumar. „Allt sem þeir gerðu, þegar þeir lentu í málum eins og með Björgvin, þá voru þeir alltaf að tækla alla hluti mjög vel.“ Logi Ólafsson segir að ef Rúnar fari eitthvað, þá eigi hann að taka við íslenska landsliðinu. „Breiddin og samkeppnin hefur skilað þeim þessu sem þeir hafa náð. Þekkjandi þessa menn og ef það á að fara með Rúnar eitthvað þá á að keyra hann niður í Laugardal og taka við landsliðinu. Það er mín skoðun.“ „Þetta eru ekki stór orð heldur er þetta mín skoðun,“ bætti Logi við. En er Rúnar betri kostur en Hamrén? „Ég er ekki í vafa um það en ég held að Rúnar myndi henta vel þar.“ Innslagið í heild sinni má sjá hér að neðan.Klippa: Pepsi Max-mörkin: KR
Pepsi Max-deild karla Pepsi Max-mörkin Mest lesið Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Spila að eigin ósk í sömu litum og í leiknum fræga með „hendi guðs“ Fótbolti „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Íslenski boltinn Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti Lögreglan hefur hafið rannsókn á andláti HM-leikmannsins Fótbolti Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Körfubolti Valur bætir við sig fyrrum markadrottningu úr Lengjudeildinni Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Umferðin klárast og allt gert upp í Stúkunni Íslenski boltinn Uppgjör: Breiðablik-Keflavík 2-1 | Kristinn tryggði Blikum sigurinn Íslenski boltinn „Ég sef í bílnum ef ég þarf“ Golf Fleiri fréttir „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Fylkismenn keyrðu yfir Vestra í upphafi leiks Frábært að koma úr meiðslum og skora sitt fyrsta mark Valur bætir við sig fyrrum markadrottningu úr Lengjudeildinni Uppgjör: Breiðablik-Keflavík 2-1 | Kristinn tryggði Blikum sigurinn Þórdís fer frá Þrótti til Breiðabliks Völdu besta og efnilegasta leikmanninn ásamt úrvalsliði deildarinnar Sjáðu markasúpuna úr Bestu deildinni í gær Dagskráin í dag: Umferðin klárast og allt gert upp í Stúkunni „Leikurinn sýnir að við erum að þróast í rétta átt“ „Þessi sigur sýnir hvað hópurinn er þéttur“ Lárus Orri: „Erum í bullandi fallbaráttu“ Uppgjörið: FH - Valur 2-0 | Gils gerði gæfumuninn í langþráðum sigri FH-liðsins Magnaður Sveinn Margeir: „Við eigum fullt inni“ Uppgjörið: KA - ÍA 3-2 | Víti í blálokin og loksins vann KA leik „Er að fara vinna þennan gullskó og ég er að fara slá markametið“ Uppgjörið: KR - ÍBV 5-2 | Eyjamenn sáu ekki til sólar í rokinu vestur í bæ Uppgjörið: Fram - Þór 6-1 | Framarar settu upp sýningu „Ástæðan fyrir því að það er talað um að hún sýni ekki nóg“ Óðinn óstöðvandi í stórsigri Tindastóll mætti ekki til leiks Tíu ÍR-ingar héldu Þrótturum frá toppsætinu Uppgjörið: Valur - Stjarnan 1-1 - Valskonur enduðu sigurgöngu Stjörnunnar Sjáðu ótrúlega fimmu Ídu Marínar og Fram vinna meistarana Tímabilinu lokið hjá Elíasi sem sótti að markametinu Árni Vilhjálms í Stjörnuna Uppgjör: Þór/KA - Grindavík/Njarðvík 1-0. Margrét með sigurmarkið í upphafi leiks Botnlið Fram vann óvæntan sigur á toppliði Blika Eyjakonur með fyrsta sigurinn í tvo mánuði Skoraði í styrktarleik fyrir móður sína Sjá meira