Upp er runninn 16. desember. Þriðji í aðventu kom og fór. Aðeins átta dagar til jóla.
Vísir ætlar að gleðja lesendur sína með jóladagatali þar sem leitað verður í gullkistuna á sjónvarps- og útvarpsvefnum. Óhætt er að segja að þar sé hægt að gleyma sér við áhorf á gamalt og gott efni.
Hér að neðan má sjá sex ára gamalt myndband af Má Gunnarssyni, nýkjörnum íþróttamanni ársins í röðum fatlaðra og tónlistarmanni með meiru.
Frosti Logason heimsótti afreksmanninn í Harmageddon árið 2013 eða fyrir rúmum sex árum. Óhætt er að segja að Már sé öðrum innblástur með viðhorfi sínu.
Jóladagatal Vísis: Það þarf fólk eins og Má

Tengdar fréttir

Sportpakkinn: Nýr íþróttamaður ársins hjá fötluðum vann jólalagakeppni Rásar tvö fyrr í dag
Már Gunnarsson og Bergrún Ósk Aðalsteinsdóttir voru í dag valin íþróttafólk ársins hjá Íþróttasambandi fatlaðra.

Már Gunnarsson hlaut Kærleikskúluna 2019
Kærleikskúlan 2019 var afhent við hátíðlega athöfn á Kjarvalsstöðum í dag.